„Júlíus Sigurðsson (Skjaldbreið)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 2: Lína 2:
[[Mynd:Mynd-KG-mannamyndir 17131.jpg|thumb|250px|Júlíus með systkinum sínum.]]
[[Mynd:Mynd-KG-mannamyndir 17131.jpg|thumb|250px|Júlíus með systkinum sínum.]]

'''Júlíus Sigurðsson''', [[Skjaldbreið]], fæddist í Vestmannaeyjum 2. júlí 1912 og lést 1. október 1974. Foreldrar hans voru [[Sigurður Ingimundarson]] og [[Hólmfríður Jónsdóttir (Skjaldbreið)|Hólmfríður Jónsdóttir]]. Júlíus var kvæntur Jakobínu Jónsdóttur frá Ólafsfirði og eignuðust þau 8 börn.  
'''Júlíus Sigurðsson''', [[Skjaldbreið]], fæddist í Vestmannaeyjum 2. júlí 1912 og lést 1. október 1974. Foreldrar hans voru [[Sigurður Ingimundarson]] og [[Hólmfríður Jónsdóttir (Skjaldbreið)|Hólmfríður Jónsdóttir]]. Júlíus var kvæntur [[Jakobína Jónsdóttir (Drífanda)|Jakobínu Jónsdóttur]] frá Ólafsfirði og eignuðust þau 8 börn.  

Ungur hóf Júlíus sjómennsku með föður sínum sem var kunnur formaður í Eyjum. Formennsku hóf Júlíus á [[Bliki|Blika]] árið 1930. Eftir það var Júlíus meðal annars með [[Þorgeir Goði|Þorgeir Goða]], [[Gullþórir|Gullþóri]] og [[Már|Má]]. Eftir að Júlíus hætti sjómennsku vann hann sem vigtarmaður hjá [[Vinnslustöðin|Vinnslustöð Vestmannaeyja]]. Júlíus starfaði mikið með [[Skipstjóra- og stýrimannafélag Verðandi|skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi]] og var formaður þar í fjögur ár.  

Núverandi breyting frá og með 22. júlí 2022 kl. 13:18

Stjórnandinn, Júlíus, á Sjómannadaginn.
Júlíus með systkinum sínum.

Júlíus Sigurðsson, Skjaldbreið, fæddist í Vestmannaeyjum 2. júlí 1912 og lést 1. október 1974. Foreldrar hans voru Sigurður Ingimundarson og Hólmfríður Jónsdóttir. Júlíus var kvæntur Jakobínu Jónsdóttur frá Ólafsfirði og eignuðust þau 8 börn.

Ungur hóf Júlíus sjómennsku með föður sínum sem var kunnur formaður í Eyjum. Formennsku hóf Júlíus á Blika árið 1930. Eftir það var Júlíus meðal annars með Þorgeir Goða, Gullþóri og . Eftir að Júlíus hætti sjómennsku vann hann sem vigtarmaður hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja. Júlíus starfaði mikið með skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi og var formaður þar í fjögur ár.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Júlíus:

Skýr á sækir skeiðar láð
Skjaldbreið frá hann Júlli,
þó að storma bylgjan bráð
breiðum Þorgeir rúlli.

Myndir

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.