Jón Eyjólfsson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. apríl 2014 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. apríl 2014 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón Eyjólfsson''' bóndi og sjómaður á Kirkjubæ fæddist 1862 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum og fórst 20. maí 1901, drukknaði í álnum suður af Bja...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Eyjólfsson bóndi og sjómaður á Kirkjubæ fæddist 1862 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum og fórst 20. maí 1901, drukknaði í álnum suður af Bjarnarey.

Ætt og uppruni

Foreldrar Jóns voru Eyjólfur bóndi á Yztabæli u. Eyjafjöllum, f. 10. október 1824, d. 4. október 1863, Magnúsar frá Knopsborg á Seltjarnarnesi, bónda á Yztabæli 1816, f. 1786, d. 1855, Jóns húsmanns í Knopsborg, f. 1750, d. 1788, Þorsteinssonar og seinni konu Magnúsar bónda (11. nóvember 1822), Margrétar húsfreyju, f. 1790, d. 1848, Eyjólfsdóttur.
Móðir Jóns á Kirkjubæ og kona Eyjólfs var Ingibjörg húsfreyja á Yztabæli, en var á Kirkjubæ í Eyjum 1901 og 1910, f. 22. apríl 1835, d. 7. marz 1915, Jóns bónda á Rauðafelli, f. á Ytri-Sólheimum 1795, d. 1860, Einars, f. 1759, d. 1801, Sigurðssonar og konu Jóns á Rauðafelli, Ingibjargar húsfreyju, f. 1794, Hjörleifsdóttur.

Lífsferill

Jón missti föður sinn, er hann var á fyrsta ári. Hann var settur niður í Steinum u. Eyjafjöllum. Var hann þar niðursetningur 1870, vinnumaður þar 1880. Hann fluttist til Eyja og var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1890, síðar bóndi og sjómaður í Vestri-Staðarbæ á Kirkjubæ.
Jón var félagi í Framfarafélaginu 1895.
Hann fórst með áraskipinu Sjólyst 20. maí 1901 í álnum suður af Bjarnarey.
Kona Jóns (8. október 1892) var Sigríður Sighvatsdóttir húsfreyja, f. 1864, d. 12. september 1902. Foreldrar hennar voru Sighvatur Sigurðsson bóndi á Vilborgarstöðum og k.h. Björg Árnadóttir húsfreyja.
Börn þeirra Sigríðar voru:

  1. Kristján Loftur, f. 1891.
  2. Kjartan, f. 1896, d. 1940.
  3. Sigurður Björgvin, f. 1899, d. 1914.
  4. Jónína Sigríður, f. 1901, d. 1922.

Heimildir