Framfarafélag Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hinn 28. maí 1893 komu nokkrir Eyjamenn saman á fund til þess að ræða um stofnun búnaðarfélags í Vestmannaeyjum. Hvatamaðurinn að þessum fundi var Jón Magnússon þáverandi sýslumaður í Vestmannaeyjum. Eftir nokkrar umræður þá komust fundarmenn að þeirri niðurstöðu, að stofnun búnaðarfélags gæti borið sýnilegan ávöxt í framförum í Vestmannaeyjum sem og annars staðar á landinu.

Það var því ákveðið að kjósa í þriggja manna nefnd til þess að semja lög fyrir félagið. Í henni voru: Sigurður Sigurfinnsson bóndi og skipstjóri í Dalbæ, Jón Jónsson hreppstjóri og Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi.

Þann 13. ágúst var annar stofnfundurinn haldinn og þar var fallist á að félagið skyldi heita framfarafélag í stað búnaðarfélags. Þótti það nafn eiga betur við eins og hagaði til í Vestmannaeyjum.

Tilgangur félagsins var að styðja að framförum sveitarmanna í sem flestum málum, einkum í búnaði og öðrum atvinnuvegum.

Sigurður Sigurfinnsson hreppstjóri var formaður Framfarafélags Vestmannaeyja alveg frá stofnun þess 1893 og til félagsslita 1914.



Heimildir