Ingigerður Jónsdóttir (Sjólyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. nóvember 2015 kl. 22:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. nóvember 2015 kl. 22:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingigerður Jónsdóttir''' vinnukona frá Þorlaugargerði fæddist 4. desember 1857 í Sjólyst og lést 2. mars 1907.<br> Foreldrar hennar voru [[Jón Árnason (Sjólyst...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingigerður Jónsdóttir vinnukona frá Þorlaugargerði fæddist 4. desember 1857 í Sjólyst og lést 2. mars 1907.
Foreldrar hennar voru Jón Árnason í Sjólyst, bóndi í Þorlaugargerði, f. 28. mars 1829 í Dúðu í Fljótshlíð, d. 9. janúar 1892 og kona hans Þuríður Oddsdóttir húsfreyja, f. 12. maí 1829 á Kirkjubæ, d. 31. október 1903.

Ingigerður var með foreldrum sínum í Sjólyst í fyrstu, síðan í Þorlaugargerði og fluttist með þeim til Reykjavíkur 1873, var hjá þeim í Þóroddsholti þar 1880, í Króki þar 1890 og 1901. Hún lést 1907.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.