„Ingi Einarsson (Götu)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Jóhann ''Ingi'' Einarsson''' vélstjóri, pípulagningamaður, leigubílstjóri fæddist 29. febrúar 1940 í [[Nýborg]] og lést 17. október 2021 í [[Hraunbuðir|Hraunbúðum]].<br>
'''Jóhann ''Ingi'' Einarsson''' vélstjóri, pípulagningamaður, leigubílstjóri fæddist 29. febrúar 1940 í [[Nýborg]] og lést 17. október 2021 í [[Hraunbúðir|Hraunbúðum]].<br>


Foreldrar hans voru [[Einar Runólfsson (Götu)|Einar Runólfsson]] verkamaður í Götu, f. 14. mars 1892, d. 1. ágúst 1969, og kona hans [[Sigríður Guðmundsdóttir (Götu)|Sigríður Magnúsína Guðmundsdóttir]] frá [[Ey]], f. 23. janúar 1906, d. 6. september 1975.
Foreldrar hans voru [[Einar Runólfsson (Götu)|Einar Runólfsson]] verkamaður í Götu, f. 14. mars 1892, d. 1. ágúst 1969, og kona hans [[Sigríður Guðmundsdóttir (Götu)|Sigríður Magnúsína Guðmundsdóttir]] frá [[Ey]], f. 23. janúar 1906, d. 6. september 1975.

Útgáfa síðunnar 28. október 2021 kl. 09:54

Jóhann Ingi Einarsson vélstjóri, pípulagningamaður, leigubílstjóri fæddist 29. febrúar 1940 í Nýborg og lést 17. október 2021 í Hraunbúðum.

Foreldrar hans voru Einar Runólfsson verkamaður í Götu, f. 14. mars 1892, d. 1. ágúst 1969, og kona hans Sigríður Magnúsína Guðmundsdóttir frá Ey, f. 23. janúar 1906, d. 6. september 1975.

Börn Sigríðar og Einars í Götu voru:
1. Jóhann Ingvi Einarsson, f. 26. febrúar 1925 í Ey, d. 1939. Hann var fóstraður hjá Vilhjálmi Einari Magnússyni frá Presthúsum, ömmubróður sínum, verkamanni í Reykjavík og konu hans Ólöfu Eiríksdóttur.
2. Jónína Einarsdóttir, f. 13. nóvember 1926 í Pétursborg á Fáskrúðsfirði.
3. Guðbjörg Sigfríð Einarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 23. september 1931 í Nýborg, d. 22. október 2013.
4. Rannveig Snót Einarsdóttir, f. 26. janúar 1934 í Steini, d. 15. nóvember 2007.
5. Jóhann Ingi Einarsson, f. 29. febrúar 1940 í Nýborg.

Ingi var með foreldrum sínum í Nýborg við fæðingu og síðan í Götu. Hann tók minna véstjórapróf í Eyjum 1960, lærði pípulagnir og vann við iðnina. Hann gerðist leigubílstjóri í Eyjum fram að Gosi og síðan í Reykjavík, dvaldi um skeið á Dvalarheimilinu Hamri í Mosfellsbæ með Birnu konu sinni, dvaldi síðast í Hraunbúðum.
Þau Birna giftu sig 1963, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Fjólugötu 1 í Eyjum, síðar á Hamri í Mosfellsbæ.
Birna lést 2019 og Einar 2021.

Kona Jóhanns Inga, (11. maí 1963), er Birna Valgerður Jóhannesdóttir frá Kirkjulundi, talsímakona í Eyjum, húsfreyja, f. 10. október 1937, d. 22. október 2019.
Börn þeirra:
1. Alda Jóhanna Jóhannsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 10. október 1963. Maður hennar er Óskar Ólafsson.
2. Erna Sigríður Jóhannsdóttir húsfreyja, sálfræðingur í Reykjavík, f. 29. maí 1965. Maður hennar er Gunnar Hólm Ragnarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.