„Ingi Einarsson (Götu)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jóhann ''Ingi'' Einarsson pípulagningamaður, leigubílstjóri fæddist 29. febrúar 1940 í Nýborg.<br> Foreldrar hans voru Einar Runólfsson...)
 
m (Verndaði „Ingi Einarsson (Götu)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. nóvember 2016 kl. 20:17

Jóhann Ingi Einarsson pípulagningamaður, leigubílstjóri fæddist 29. febrúar 1940 í Nýborg.

Foreldrar hans voru Einar Runólfsson verkamaður í Götu, f. 14. mars 1892, d. 1. ágúst 1969, og kona hans Sigríður Magnúsína Guðmundsdóttir frá Ey, f. 23. janúar 1906, d. 6. september 1975.

Börn Sigríðar og Einars í Götu voru:
1. Jóhann Ingvi Einarsson, f. 26. febrúar 1925 í Ey, d. 1939. Hann var fóstraður hjá Vilhjálmi Einari Magnússyni frá Presthúsum, ömmubróður sínum, verkamanni í Reykjavík og konu hans Ólöfu Eiríksdóttur.
2. Jónína Einarsdóttir, f. 13. nóvember 1926 í Pétursborg á Fáskrúðsfirði.
3. Guðbjörg Sigfríð Einarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 23. september 1931 í Nýborg, d. 22. október 2013.
4. Rannveig Snót Einarsdóttir, f. 26. janúar 1934 í Steini, d. 15. nóvember 2007.
5. Jóhann Ingi Einarsson, f. 29. febrúar 1940 í Nýborg.

Ingi var með foreldrum sínum í Nýborg við fæðingu og síðan í Götu. Hann lærði pípulagnir og vann við iðnina. Hann gerðist leigubílstjóri í Eyjum fram að Gosi og síðan í Reykjavík, dvelur nú á Dvalarheimilinu Hamri í Mosfellsbæ með Birnu konu sinni.
Þau Birna bjuggu á Fjólugötu 1 í Eyjum.

Kona Jóhanns Inga, (11. maí 1963), er Birna Valgerður Jóhannesdóttir frá Kirkjulundi, talsímakona í Eyjum, húsfreyja, f. 10. október 1937.
Börn þeirra:
1. Alda Jóhanna Jóhannsdóttir, f. 10. október 1963.
2. Erna Sigríður Jóhannsdóttir, f. 29. maí 1965.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.