Inga Dóra Þorsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Inga Dóra Þorsteinsdóttir sjúkraliði og húsmóðir frá Goðasteini fæddist 2. maí 1946 í Háagarði. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Þórður Víglundsson, f. 1899 og k.h. Ingigerður Jóhannsdóttir, f. 1902.

Inga Dóra bjó í Goðasteini í Eyjum til ársins 1973, en fluttist þá til Reykjavíkur.

Hún var í Gagnfræðaskólanum 1959-1963 og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Sjúkraliðaprófi lauk hún 1978. Hún vann á Borgarspítalanum (Grensásdeild og deild 6A) 1978-1998, Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Rvk 1998-2000, en síðan á Reykjalundi í Mosfellsbæ.

Maki (10. des. 1966): Helgi (Guðmundur Helgi) Guðjónsson bifvélavirkjameistari , f. 1947.
Börn: Ingigerður sjúkraþjálfari, f. 1966; Guðný Helga löggiltur endurskoðandi, f. 1968; Kristín Hrönn kennari, f. 12. febr. 1976 í Rvk.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.