Ingólfur Steinsson (Ingólfshvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. desember 2015 kl. 20:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. desember 2015 kl. 20:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ingólfur Steinsson.

Ingólfur Páll Steinsson prentari, auglýsingastjóri, forstöðumaður, framkvæmdastjóri fæddist 1. júní 1924.
Foreldrar hans voru Steinn Sigurðsson klæðskeri á Ingólfshvoli, síðar í Reykjavík, f. 6. apríl 1873 í Vestra-Fróðholti í Rang., d. 9. nóvember 1947, og kona hans Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir húsfreyja, f. 4. febrúar 1878 í Breiðagerði í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, d. 4. júní 1968, en hún var systir sr. Friðriks Friðrikssonar.

Ingólfur átti heimili á Ingólfshvoli til ársins 1929, er fjölskyldan flutti til Reykjavíkur.
Hann hóf nám í Félagsprentsmiðjunni 1940, var jafnframt í Iðnskólanum í Reykjavík og lauk sveinsprófi í prentsetningu 1944, hlaut meistararéttindi 1953.
Hann vann síðan í Félagsprentsmiðjunni, uns hann hélt til Bandaríkjanna til framhaldsnáms 1947, vann síðan í Félagsprentsmiðjunni, Letri og Eddu.
Ingólfur hélt aftur til Bandaríkjanna 1961 og vann þar til ársins 1974. Þar starfaði hann við Washington Post bæði sem verkstjóri og kennari við upplímingu á auglýsingum.
Hann starfaði síðan við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem yfirmaður við tölvusetningu.
Ingólfur fluttist heim 1974, varð framkvæmdastjóri Alþýðublaðsins um hríð. Þá tók hann við starfi auglýsingastjóra Dagblaðsins (DB) og síðan DV til 1996.
Á listasviði lærði hann og vann að grafískri hönnun og skóp meðal annars grafíska verkið af gamla bæjarhluta Eyjanna, sem fór undir hraun. Hann gaf það verk til Eyja og prýðir það nú framstafn Safnahússins.
Ingólfur var í stjórn Í.R., Íþróttaráðs Reykjavíkur og Frjálsíþróttasambands Íslands. Hann var einn af fararstjórunum til Brussel 1950.

I. Kona Ingólfs, (19. september 1953, skildu), var Sólveig húsfreyja, skrifstofustjóri, f. 25. febrúar 1929, Pálmadóttir frá Nautabúi skrifstofustjóra hjá Kveldúlfi, f. 10. október 1902, Jónssonar. Móðir Sólveigar var Tómasína Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 17. maí 1899, d. 10. apríl 1953.
Börn þeirra:
1. Kristín Ingólfsdóttir húsfreyja, prófessor í lyfjafræði, fyrrv. háskólarektor, nú gestaprófessor við MIT í Boston, f. 14. febrúar 1954.
2. Pálmi Ingólfsson skrifstofustjóri í Bretlandi, f. 28. október 1958.

II. Síðari kona Ingólfs, (22. maí 1985), er Erna Fríða Berg Björnsdóttir húsfreyja, skrifstofustjóri, f. 2. september 1938.

III. Barnsmóðir Ingólfs var Jóhanna Magnúsdóttir skrifstofumaður, f. 20. júlí 1927, d. 7. febrúar 2013.
Barn þeirra:
3. Þórunn Jónína Ingólfsdóttir húsfreyja, framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 27. ágúst 1947.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bókagerðarmenn frá upphafi prentlistar á Íslandi. Svanur Jóhannesson, Ari Gíslason, Sverrie Marinósson. Bókbindarafélag Íslands, Hið íslenska prentarafélag, Grafíska sveinafélagið; 1976.
  • Ingólfur Steinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Kristín Ingólfsdóttir.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.