Ingólfshvoll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. nóvember 2012 kl. 16:55 eftir Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. nóvember 2012 kl. 16:55 eftir Þórunn (spjall | framlög) (bætt við íbúum skv manntali 1953)
Fara í flakk Fara í leit
Ingólfshvoll
Ingólfshvoll

Húsið Ingólfshvoll stóð við Landagötu 3a var byggt árið 1902 fyrir beitusíld. Hér var fyrrum íshús Ísfélags Vestmannaeyja. Húsið fór undir hraun.

Nokkrar dætur Steins ásamt sauma- og vinnukonu fyrir utan Ingólfshvol.

Steinn Sigurðsson klæðskeri bjó í húsinu frá árinu 1908. Hann bjó þar ásamt konu sinni Kristínu Hólmfríði Friðriksdóttur og börnum. Þar bjuggu þau til ársins 1929. Árið 1953 búa í húsinu Karl Kristmannsson og Betsý Ágústsdóttir og börn þeirra Ingibjörg Karlsdóttir, Viktoría Karlsdóttir, Kolbrún Karlsdóttir, Ágúst Karlsson, Friðrik Karlsson. Bjarni Eyjólfsson og kona hans Guðrún Guðjónsdóttir.

Þegar gaus bjuggu þar hjónin Einar Sigurðsson og Rannveig Konráðsdóttir ásamt sonum sínum Arnari og Jóhanni.


Heimildir

  • Íbúaskrá 1. desember 1972.

  • Verkefni Húsin undir hrauninu 2012.