Hrossagaukur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. febrúar 2006 kl. 21:31 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. febrúar 2006 kl. 21:31 eftir Frosti (spjall | framlög) (texti frá Náttúrugripasafni og nemendum FÍV)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Hrossagaukur Galinago gallinago Hrossagaukur eða mýrisnípa er af strandfuglaætt. Fuglinn er þekktur fyrir söng og flug sem er afar heillandi og fagurt, þar er á ferð mikið undur því fuglinn hneggjar á meðan á fluginu stendur. Það fer þannig fram að fuglinn lætur sig falla nokkra metra og tekur sig síðan upp aftur í sömu hæð á meðan hann hneggjar. Hann er 25-27 cm á lengd, rúmlega 120g og með 44-47 cm vænghaf. Hrossagaukurinn er dökkbrúnn að ofan, á kollinum og á baki er hann með dökkar og ljósar rendur. Hann er ljós að neðan með stóran, sterkbyggðan gráan gogg og stutta mógula fætur.

Fuglinn kemur í apríl eftir vetrardvöl á Írlandi en þangað fer mest af fuglunum sem eiga sumardvöl hér á Íslandi. Hann lifir aðallega á skordýrum og ánamöðkum og hann aflar fæðu sinnar þannig að hann stingur nefinu á kaf í leðju og hreyfir það svo til og frá og étur allt sem hann finnur þar ofaní án þess að draga nefið uppúr leðjunni. Gaukurinn er mikið á ferðinni um nætur en hvílir sig á daginn. Fuglinn hefur gert mörgum manninum bilt við því hann kúrir sig niður þangað til maður er kominn alveg að honum, þá flýgur hann mjög snöggt í burtu með miklum skrækjum. Kjörlendi hans er mýrlendi, heiðar og kjarrlendi. Stuttu eftir komuna til landsins hefst hreiðurgerðin. Hann verpir svo í maí. Eggin eru yfirleitt 4 (1-6) þau eru fölgræn að lit eða ólífubrún að grunnlit með dekkri blettum. Útungun tekur 18-20 daga, ungarnir verða svo fleygir eftir 19-20 daga og kynþroska 1-2 ára.