Tjaldur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Tjaldur
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Tjaldur (Haematopus ostralegus)

  • Lengd: 40-46 cm.
  • Þyngd: 460-620 g.
  • Vænghaf: 80-85 cm.
  • Fluglag: Er kröftugur flugfugl en vængjatökin eru ekki djúp.
  • Fæða: Kræklingur og annar skelfiskur, og opnar fuglinn skeljarnar með hvössum og sterkum gogginum og étur úr þeim fiskinn. Á landi eru það ánamaðkar og skordýr.
  • Varpstöðvar: Er hér víða um land, einkum þó nálægt sjó, en einnig við ár og vötn inn til landsins.
  • Hreiður: Grunnar lautir, ófóðraðar.
  • Egg: 1-4, gráleit eða brún með dökkum flikrum.
  • Heimkynni: Mjög víða við strendur Evrópu, Asíu og Afríku. Er farfugl, á veturna leitar hann á suðlægari slóðir.




Tjaldurinn er af strandfuglaætt. Svartur að ofan og um hausinn, en niður með bringu er hann svo hvítur. Tjaldurinn er með stóran og tignarlegan gogg, rauðgulan að lit og bleikrauða sterkbyggða fætur. Fuglinn er 40-46 cm á lengd og um 570 g að þyngd. Tjaldurinn er bæði í mólendi og niður með sjó, hann er auðþekktur bæði af lit og hjóði. Tjaldinum tók að fjölga hér eftir 1920 og er nú algengur varpfugl á Íslandi. Hann er að mestu leyti farfugl þó að einhver hluti stofnsins verði eftir. Sá fugl sem fer frá Íslandi flýgur aðallega til Bretlandseyja. Tjaldurinn er alfriðaður. Hann er áberandi og nokkuð hávær.

Við sjóinn lifir tjaldurinn mest á kræklingi, hjartaskeljum og öðrum smákvikindum, en inn til landsins eru það ánamaðkar og skordýr sem eru aðalfæðan. Tjaldurinn heldur til við ströndina og í malarbörðum upp til landsins. Varptíminn hefst seint í apríl eða í maíbyrjun. Kvenfuglinn hefur þó oft mörg hreiðurstæði um að velja. Hreiðurgerðin er lítil sem engin, oftast laut í möl eða skeljabrotum. Eggin eru oftast 3, en geta verið á bilinu 1-4. Þau eru ljósbrún eða grá með svörtum rákum. Útungunartíminn er 21-27 dagar. Ungarnir verða svo fleygir 28-35 dögum eftir útungun og verða kynþroska 3-5 ára.