Hjálmfríður R. Sveinsdóttir (skólastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:41 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:41 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hjálmfríður Sveinsdóttir er fædd 2. desember 1948. Hjálmfríður kom fyrst til Vestmannaeyja árið 1969 til þess að kenna forfallakennslu. Síðan þá hefur hún verið búsett í Vestmannaeyjum ef frá er talinn veturinn 1973-1974.

Hjálmfríður varð yfirkennari í Barnaskóla Vestmannaeyja árið 1978 og skólastjóri árið 1987 þegar Eiríkur Guðnason lést.

Hjálmfríður lét af starfi skólastjóra vorið 2006 þegar nýr skólastjóri, Fanney Ásgeirsdóttir, var ráðinn við sameiningu Hamarsskóla og Barnaskóla Vestmannaeyja. Hjálmfríður býr nú í Hafnarfirði.