Hilmir Þorvarðarson (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. september 2020 kl. 13:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. september 2020 kl. 13:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Hilmir Þorvarðarson. '''Hilmir Þorvarðarson''' frá Ólafshúsum, bílamálari fæddist þar 26. september 1934 og lést 7. de...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hilmir Þorvarðarson.

Hilmir Þorvarðarson frá Ólafshúsum, bílamálari fæddist þar 26. september 1934 og lést 7. desember 2019.
Foreldrar hans voru Þorvarður Ingvarsson sjómaður, f. 29. júní 1906, d. 31. janúar 1942, og kona hans Elín Jónsdóttir frá Ólafshúsum, húsfreyja, f. 6. ágúst 1910, d. 6. mars 1993.
Stjúpfaðir Hilmis var síðari maður Elínar, Þórður Sveinsson netagerðarmaður.

Börn Elínar og Þorvarðar:
1. Jórunn Erla, f. 2. nóvember 1929.
2. Ríkharður Ingvi, dó kornabarn.
3. Hilmir Þorvarðarson, f. 26. september 1934, d. 7. desember 2019.
Börn Elínar og Þórðar Sveinssonar:
4. Þorvarður Þórðarson, f. 13. janúar 1946.
5. Sigríður Sveinbjörg Þórðardóttir, f. 4. júní 1954.

Hilmir var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Hilmir var á áttunda árinu. Hann ólst upp síðan með móður sinni og síðari manni hennar Þórði Sveinssyni í Engidal.
Hann var í sveit á sumrum í Presthúsum í Mýrdal, gerðist sjómaður og stundaði sjómennsku fram á sjötta áratuginn, yfirleitt matsveinn.
Eftir flutning til Reykjavíkur 1963 vann Hilmir við bílamálun og fékk fagréttindi, stofnaði 1973 fyrirtæki um starfsemina. 1988 stofnaði hann ásamt Kjartani syni sínum Lakkhúsið. Skömmu síðar koma Jón Bergur inn í fyrirtækið. Einnig ráku þau Ragnhildur leikfangaverslunina Leikborg frá 1980.
Þau Ragnhildur giftu sig 1963, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Melabraut 18 í Kópavogi og síðar Engjasmára 7 þar.
Hilmir lést 2019.

I. Kona Hilmis, (3. júní 1963), er Ragnhildur Kjartansdóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 30. júlí 1939. Foreldrar hennar voru Kjartan Tómasson frá Árbæjarhjáleigu í Holtum, verkamaður, bifreiðastjóri í Reykjavík og Kópavogi, f. 11. desember 1899 í Framnesi í Ásahreppi, d. 9. mars 1986, og kona hans Lilja Ólafsdóttir frá Vík í Mýrdal, húsfreyja, f. þar 3. júní 1912, d. 26. janúar 2006.
Börn þeirra:
1. Kjartan Hilmisson bílamálari, býr í Noregi, f. 21. maí 1964. Fyrrum kona hans Hrönn Fonseca Kristbjörnsdóttir. Kona hans Elísabet Stefánsdóttir.
2. Jón Bergur Hilmisson bílamálari, f. 19. maí 1971. Kona hans Sigríður Árný Júlíusdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 18. desember 2019. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.