Jórunn Erla Þorvarðardóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jórunn Erla Þorvarðardóttir húsfreyja, matartæknir í Reykjavík, fæddist 2. nóvember 1929.
Foreldrar hennar voru Þorvarður Ingvarsson sjómaður í Ólafshúsum, f. 29. júní 1906, d. 31. janúar 1942, og kona hans Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1910, d. 6. mars 1993.

Börn Elínar og Þorvarðar:
1. Jórunn Erla, f. 2. nóvember 1929.
2. Ríkharður Ingvi, dó kornabarn.
3. Hilmir Þorvarðarson, f. 26. september 1934, d. 7. desember 2019.
Börn Elínar og Þórðar Sveinssonar:
4. Þorvarður Þórðarson, f. 13. janúar 1946.
5. Sigríður Sveinbjörg Þórðardóttir, f. 4. júní 1954.

Jórunn Erla var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést 1942 og eftir að móðir hennar giftist aftur var hún hjá ömmu sinni og afa í Ólafshúsum.
Hún vann í Netagerðinni, uns hún fór í Kvennaskólann á Blönduósi og nam þar 1947 og 1948.
Þau Óskar giftu sig 1951, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu hjá foreldrum Óskars, en byggðu húsið við Akurgerði 62 í Reykjavík og bjuggu þar síðan og þar býr Jórunn Erla enn.
Óskar lést 1982.
Erla bjó um skeið með Torfa Bryngeirssyni. Hann lést 1995.

I. Maður Jórunnar Erlu, (25. júní 1951), var Óskar Þorvarðarson húsgagnasmíðameistari í Reykjavík, f. 19. janúar 1929, d. 17. september 1982. Foreldrar hans voru Þorvarður Guðbrandsson, f. 1. maí 1896, d. 10. september 1975 og Ágústa Sumarrós Andrésdóttir, f. 10. ágúst 1906, d. 31. október 1990.
Börn þeirra:
1. Elín Óskarsdóttir húsfreyja í Svíþjóð, ritari í Sendiráði Íslands, f. 14. ágúst 1951. Maður hennar Einar Kristjánsson.
2. Þorvarður Óskarsson matreiðslumeistari, f. 19. mars 1955. Kona hans Hildur Marísdóttir.
3. Andrés Óskarsson bókari, f. 26. júní 1957. Kona hans Ingunn Jóna Björnsdóttir.
4. Ágústa Óskarsdóttir fyrrv. starfsmannastjóri í Grindavík, f. 14. ágúst 1958. Maður hennar Pétur Hafsteinn Pálsson.
5. Ólöf Dagný Óskarsdóttir húsfreyja, stjórnandi, f. 4. apríl 1966. Fyrrum maður hennar Logi Bergmann Eiðsson.

II. Sambúðarmaður Erlu var Torfi Bryngeirsson, f. 11. nóvember 1926, d. 16. júlí 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.