Helgi Scheving

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Helgi með foreldrum og systkinum. Helgi er lengst til hægri á myndinni.

Vigfús Helgi Sigfússon Scheving fæddist 8. mars 1914 og lést 8. september 1934. Helgi var sonur hjónanna Sigfúsar Scheving og Sesselju Sigurðardóttur. Foreldrar hans bjuggu í Heiðarhvammi og ólst hann þar upp við alla venjulega vinnu. Snemma bar á óvenjulegum gáfum og fékk hann tækifæri til sérstaks bóknáms, forréttindi sem voru fátíð á þessum árum. Helgi lærði í Unglingaskóla Vestmannaeyja árið 1927 og lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1930. Hann útskrifaðist með stúdentspróf frá sama skóla árið 1933. Heimspekiprófi lauk hann frá Háskóla Íslands vorið 1934. Helgi var afburða námsmaður og hlaut fyrstu einkunn í öllum prófum.

Helgi skrifaði gríðargóða og ítarlega ritgerð um fiskveiðar í Vestmannaeyjum á síðasta ári sínu í menntaskóla. Bar ritgerðin heitið „Fiskveiðar í Vestmannaeyjum um og eftir aldamótin 1900.“ Ritgerð þessi birtist í blaðinu Víði árið 1937 og var það Jóhann Gunnar Ólafsson sem að skrifaði hana upp.

Helgi lést af slysförum árið 1934, rétt orðinn tvítugur.