Helgi Benediktsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 08:24 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 08:24 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Helgi Benediktsson fæddist 3. desember 1899 og lést 8. apríl 1971. Helgi bjó meðal annars á Heiðarvegi, í Hábæ og Einbúa. Kona hans var Guðrún Stefánsdóttir. Börn þeirra eru Stefán, Sigtryggur, Guðmundur, Páll, Helgi, Guðrún, Arnþór og Gísli.


Helgi var afkastamikill útgerðarmaður, meðal annars með Skaftfelling og Skíðblaðni. Hann var einn af stofnendum Vinnslustöðvarinnar og sat í fyrstu stjórn félagsins. Helgi sat í stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja frá 1943–1958.

Helgi rak einnig byggingar- og útgerðarverslun, lengst af í Vosbúð.