Helgafell við Helgafellsöxl

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 11:05 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 11:05 eftir Daniel (spjall | framlög) (breytti tengli)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Helgafell


Húsið Helgafell við jaðar Helgafells

Húsið Helgafell stendur utan byggðar. Það var reist árið 1936 og stendur við jaðar Helgafells.. Verkalýðsfélögin í Eyjum byggðu húsið og var þar um nokkurra ára skeið starfrækt barnaheimili á vegum þeirra. Barnaheimilið var starfrækt frá 12. júní 1946 til 1959 en þá var reksturinn færður niður á Ásaveg, í húsið Sóla.

Börn að leik á barnaheimilinu.

Upp úr 1960 keyptu ungir sjálfstæðismenn í Eyjum húsið og gerðu það upp sem félagsheimili. Húsið var í daglegu tali kallað „Betlehem”, að sögn vegna þess að félagsmenn voru síbetlandi hjá fyrirtækjum í bænum þegar lagfæringar á húsinu áttu sér stað. Önnur skýring á nafninu er mjög vegleg og áberandi ljósaskreyting sem komið var upp á húsinu um jól.

Íbúðarhúsið við Helgafell.

Helgafell hefur verið íbúðarhús Högna Sigurðssonar, fyrrverandi verkstjóra hjá bæjarveitunni, frá Vatnsdal hin síðari ár.