Gunnar Þ. Jónatansson (Stórhöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2021 kl. 11:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2021 kl. 11:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Gunnar Þ. Jónatansson (Stórhöfða)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Þórarinn Jónatansson frá Stórhöfða, dúklagningameistari fæddist 21. nóvember 1899 að Garðakoti í Mýrdal og lést 28. janúar 1999.
Foreldrar hans voru Jónatan Jónsson vitavörður í Stórhöfða, f. 3. október 1857, d. 10. apríl 1939, og kona hans Guðfinna Þórðardóttir húsfreyja, f. 4. september 1875, d. 30. nóvember 1959.

Börn Guðfinnu og Jónatans:
1. Sigurður Valdimar Jónatansson vitavörður, f. 3. desember 1897, d. 4. maí 1966.
2. Gunnar Þórarinn Jónatansson dúklagningameistari, f. 2. nóvember 1899, d. 28. janúar 1999.
3. Sigríður Jónatansson húsfreyja, 6. nóvember 1903, d. 16. mars 1994.
4. Hjalti Guðmundur Jónatansson módelsmiður og verslunarmaður, f. 22. febrúar 1910, d. 29. október 2004.

Gunnar var með foreldrum sínum í Garðakoti til 1908, í Reykjavík 1908-1910, á Stórhöfða frá 1910 uns hann flutti til Reykjavíkur 1931, bjó þar og á Vegamótum á Seltjarnarnesi.
Hann vann við veggfóðrun og dúklagningar og hafði meistararéttindi í greininni.
Gunnar lést 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.