Guðrún Jónsdóttir (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2014 kl. 14:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2014 kl. 14:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Jónsdóttir''' húsfreyja á Löndum fæddist 1829 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 29. apríl 1873 á Löndum.<br> Faðir hennar var Jón bóndi á Hrútafelli...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Löndum fæddist 1829 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 29. apríl 1873 á Löndum.
Faðir hennar var Jón bóndi á Hrútafelli og Helgusöndum u. Eyjafjöllum, f. 1801 í Breiðavíkursókn, d. 17. nóvember 1869, Brynjólfsson.
Móðir Guðrúnar var Þóra húsfreyja, f. 1799, d. 4. mars 1864, Jónsdóttir bónda í Steinum og á Hrútafelli, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar bónda, líklega á Leirum u. Eyjafjöllum, f. 1736, Jónssonar og konu Eiríks á Leirum, Katrínar húsfreyju, f. 1725, d. 19. janúar 1805, Jónsdóttur.

Guðrún var systir Ísaks Jakobs Jónssonar bónda í Norðurgarði.

Guðrún var á Hrútafelli 1835.
Hún fluttist úr Dalssókn u. Eyjafjöllum að Kirkjubæ 1843 og var þar 17 ára vinnukona 1845, í Steinmóðshúsi 1846, í Kastala 1847, á Gjábakka 1850.
Hún eignaðist 2 börn með Magnúsi, 1846 og 1847, missti fyrra barnið á 1. ári, en síðara barnið 5 ára gamalt 1851. Magnús drukknaði áður en 2. barn þeirra fæddist.
Guðrún var vinnukona í Frydendal, er hún eignaðist Halldór. Þau Eyjólfur giftust 1858, hann þá búandi á Löndum og hún bústýra hans.

I. Barnsfaðir Guðrúnar að tveim börnum var Magnús Magnússon vinnumaður, f. 1821, drukknaði við Landeyjasand 30. janúar 1847.
Börn þeirra voru:
1. Jón Magnússon, f. 12. júní 1846 í Steinmóðshúsi, d. 21. ágúst 1846, (sjúkdómsheiti ólesanlegt).
2. Magnús Jón Magnússon, f. 29. október 1847 í Kastala, eftir lát föður síns, d. líklega í Stóra-Gerði 21. nóvember 1851 úr „barnaveikinni“, 5 ára.

II. Maður Guðrúnar, (20. nóvember 1858), var Eyjólfur Jónsson tómthúsmaður, sjávarbóndi á Löndum, f. 29. september 1832, d. 2. ágúst 1914.
Börn þeirra voru:
3. Halldór Eyjólfsson, f. 4. febrúar 1857, d. 7. febrúar 1857, „gat ei lifað sökum vanskapnaðar“.
4. Sigríður Eyjólfsdóttir, f. 8. ágúst 1859, d. 4. október 1859 „af barnaveiki“.
5. Jóhanna Sigríður Eyjólfsdóttir, f. 26. október 1862, d. 24. júlí 1917. Hún bjó á Seyðisfirði.
6. Þóra Eyjólfsdóttir, f. 11. febrúar 1865, d. 1. janúar 1936. Hún var húsfreyja í Keflavík.


Heimildir