Eyjólfur Jónsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eyjólfur Jónsson tómthúsmaður, sjávarbóndi á Löndum, fæddist 29. september 1832 á Oddum í Meðallandi og lést 2. ágúst 1914.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi, síðast í Skurðbæ í Meðallandi, f. 1799, d. 20. mars 1860, og fyrri kona hans Halldóra Eyjólfsdóttir, f. 17. ágúst 1804 á Oddum, d. 7. nóvember 1835 þar.

Eyjólfur var með foreldrum sínum til 1838, var fósturbarn í Staðarholti í Meðallandi 1840 eða fyrr, léttadrengur á Efri-Steinsmýri 1849-1850, vinnupiltur í Hlíð í Skaftártungu 1851-1855, vinnumaður á Borgarfelli þar 1855-1856.
Hann fluttist úr Skaftártungu að Frydendal 1856 þar sem hann var vinnumaður á því ári, en þar var Guðrún Jónsdóttir þá vinnukona.
Eyjólfur var nýkvæntur á Löndum 1858 og þar bjuggu þau Guðrún 1860 og 1870, hann titlaður sjávarbóndi.
Guðrún lést 1873, og 1880 var Eyjólfur ekkill og tómthúsmaður í Jónshúsi með Jóhönnu Sigríði hjá sér.
1890 var hann ekkill í Eyjólfshúsi með dætur sínar Jóhönnu Sigríði 27 ára og Þóru 24 ára hjá sér.
1901 bjó hann í Kró með Kristínu Jónsdóttur 61 árs ógiftri ráðskonu.
1910 voru þau enn í Kró og Kristín titluð ógift húsmóðir. Eyjólfur lifði þá á ellistyrk.
Eyjólfur var í Herfylkingunni.
Hann lést 1914 í Kró.

I. Kona Eyjólfs, (20. nóvember 1858), var Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 1829, d. 29. apríl 1873.
Börn þeirra voru:
1. Halldór Eyjólfsson, f. 4. febrúar 1857, d. 7. febrúar 1857, „gat ei lifað sökum vanskapnaðar“.
2. Sigríður Eyjólfsdóttir, f. 8. ágúst 1859, d. 4. október 1859 „af barnaveiki“.
3. Jóhanna Sigríður Eyjólfsdóttir, f. 26. október 1862, d. 24. júlí 1917. Hún bjó á Seyðisfirði.
4. Þóra Eyjólfsdóttir, f. 11. febrúar 1865, d. 1. janúar 1936. Hún var húsfreyja í Keflavík.

II. Sambúðarkona Eyjólfs var Kristín Jónsdóttir nefnd ,,skella‘‘, áður húsfreyja á Læk í Krýsuvík, síðan í Kró í Eyjum, f. 5. október 1833, d. 31. mars 1921.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.