„Guðrún Jónasdóttir (Skuld)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
Guðrún lést 2016.
Guðrún lést 2016.


<center>[[Mynd:Fjölskylda Dúnu og Steinars.jpg|ctr|400px]]</center>
<center>''[[Mynd:Fjölskylda Dúnu og Steinars.jpg|ctr|400px]]</center>


<center>''Fjölskylda Dúnu og Steinars.</center>
<center>''[[Mynd:Steinar, Sjöfn, Dúna, Stína.jpg|ctr|400px]]</center>''
<center>''Steinar og Dúna ásamt [[Sjöfn Jónasdóttir (skuld)|Sjöfn Jónasdóttur]] (önnur frá v.)  systur hennar og [[Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir|Kristínu Þorsteinsdóttur]] aldavinkonu hennar (h.megin).</center>


<center>''Fjölskylda Dúnu og Steinars.</center>





Útgáfa síðunnar 30. mars 2020 kl. 21:08

Guðrún Jónasdóttir.
Guðrún Jónasdóttir og Steinar Júlíusson.

Guðrún Jónasdóttir frá Skuld, húsfreyja, talsímakona, orðabókarstarfsmaður fæddist 17. janúar 1930 á Hásteinsvegi 28 og lést 18. júní 2016.
Foreldrar hennar voru Jónas Sigurðsson skipstjóri, bátabylgjuvaktmaður, skólahúsvörður, f. 29. mars 1907, d. 4. janúar 1980, og kona hans Guðrún Kristín Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1907, d. 26. mars 2005.

Guðrún (Dúna) var með foreldrum sínum í æsku, á Hásteinsvegi 28 við fæðingu, á Bergstöðum, í Hlaðbæ og í Skuld.
Guðrún lauk gagnfræðaprófi utan skóla 1947.
Hún vann á ,,Miðstöð“ á Símstöðinnni í mörg ár. Eftir flutning til Reykjavíkur vann Dúna við Orðabók Háskólans og var vaktmaður við próf í Háskóla Íslands fram undir áttrætt.
Þau Steinar giftu sig 1954, bjuggu á Hilmisgötu 1 og eignuðust fjögur börn.
Þau fluttust til Reykjavíkur 1963, eignuðust eitt barn þar, bjuggu síðar í Kópavogi.
Guðrún lést 2016.

ctr
Fjölskylda Dúnu og Steinars.
ctr
Steinar og Dúna ásamt Sjöfn Jónasdóttur (önnur frá v.) systur hennar og Kristínu Þorsteinsdóttur aldavinkonu hennar (h.megin).


Maður Guðrúnar, (3. apríl 1954), var Sigurður Steinar Júlíusson feldskeri, f. 28. janúar 1930.
Börn þeirra:
1. Jónas Þór Steinarsson viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri, f. 2. október 1946.
2. Ragna Steinarsdóttir bókasafnsfræðingur, bókavörður, f. 22. maí 1957.
3. Júlíus Þórarinn Steinarsson feldskeri, f. 1. desember 1958.
4. Eyvindur Ingi Steinarsson tónlistarmaður, kennari, f. 13. desember 1960.
5. Gunnar Kristinn Steinarsson tónlistarmaður í Nesoddtangen í Akershus, Noregi, f. 2. júlí 1964 í Reykjavík. Kona hans var Mirja Kuusela, f. 12. maí 1964, d. 1. maí 2004.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.