Guðrún Guðjónsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2012 kl. 21:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2012 kl. 21:19 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, fæddist 17. apríl 1905 og lést 18. október 1938.
Foreldrar hennar voru:
Guðjón bóndi í Tóarseli Jónsson bónda á Stórabakka í Hróarstungu Sölvasonar. Móðir Guðjóns var seinni kona Jóns Sölvasonar, Guðrún Guðmundsdóttir frá Flögu í Skriðdal. Þau Jón bjuggu á Flögu. Sölvi Einarsson afi Guðjóns bjó í Hrafnsgerði eftir föður sinn Einar, f. um 1759, Jónsson og konu hans Björgu Jónsdóttur frá Hallfreðarstöðum.
Guðmundur faðir Guðrúnar frá Flögu var sonur Guðmundar Einarssonar bónda á Flögu og konu hans (5. nóvember 1835) Guðrúnar dóttur Rasmusar Lynge verslunarstjóra á Akureyri og konu hans Rannveigar Ólafsdóttur. Þau Rannveig og Rasmus urðu síðar bændur í Svarfaðardal og víðar.
Kona Guðjóns í Tóarseli var Jónína Sigurbjörg húsfreyja frá Djúpavogi, dóttir Eiríks í Hlíðarhúsi þar Eiríkssonar á Svínarfelli í Nesjum, A-Skaft., Eiríkssonar í Hoffelli Benediktssonar. Kona Eiríks í Hlíðarhúsi á Djúpavogi var Katrín húsfreyja dóttir Björns bónda á Hálsi Sigurðssonar og konu Björns, Halldóru Sigurðardóttur í Hamarsseli í Hamarsfirði, Antoníussonar á Hálsi í Hálsþinghá. Móðir Antoníusar var Ingibjörg Erlendsdóttir Bjarnasonar og Guðnýjar Þorsteinsdóttur á Ásunnarstöðum í Breiðdal, en frá þeim Erlendi og Guðnýju er Ásunnarstaðaætt rakin.
Maður Guðrúnar var Pétur Guðjónsson frá Oddsstöðum, fæddur 12. júlí 1902, dáinn 21. ágúst 1982. Guðrún var fyrri kona hans. Seinni kona hans var Lilja Sigfúsdóttir.
Börn Péturs og Guðrúnar:
1. Ósk, f. 12. nóvember 1926.
2. Guðlaug, fædd 25. september 1928.
3. Magnús, f. 5. ágúst 1931.
4. Jóna, f. 18. ágúst 1933.
5. Guðjón, fæddur 31. júlí 1935, d. 25. janúar 1985.


Heimildir

  • Magnús Pétursson.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.
  • Manntöl o.fl.