„Guðrún Eiríksdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
Hún var vinnukona þar  hjá Ísleiki Ólafssyni og Elísabetu Eiríksdóttur í lok ársins, en Guðný var niðursetningur  á [[Miðhús]]um hjá Vigfúsi Einarssyni og Guðnýju Guðmundsdóttur.

Hún var vinnukona þar  hjá Ísleiki Ólafssyni og Elísabetu Eiríksdóttur í lok ársins, en Guðný var niðursetningur  á [[Miðhús]]um hjá Vigfúsi Einarssyni og Guðnýju Guðmundsdóttur.

Guðrún  var vinnukona í [[Boston]] 1883,  „mormón“,  og Guðný var á Miðhúsum. Hún var sjálfrar sín í [[Uppsalir|Uppsölum]]  1885,  fluttist til Utah 1886 með Guðnýju dóttur sína.

Guðrún  var vinnukona í [[Boston]] 1883,  „mormón“,  og Guðný var á Miðhúsum. Hún var sjálfrar sín í [[Uppsalir|Uppsölum]]  1885,  fluttist til Utah 1886 með Guðnýju dóttur sína.

Í ritinu The Icelanders of Utah er  tiplað á tveim mögulegum eiginmönnum hennar vestra, -  með ættarnafninu Green og Douglass. Hún hafi verið skráð ekkja við manntalsskráningu 1900.
Í ritinu The Icelanders in Utah er  tiplað á tveim mögulegum eiginmönnum hennar vestra, -  með ættarnafninu Green og Douglass. Hún hafi verið skráð ekkja við manntalsskráningu 1900.

I. Barnsfaðir Guðrúnar  var [[Jónatan Jónsson]], síðar  vitavörður í [[Stórhöfði|Stórhöfða]], f.  3. október 1857, d. 10. apríl 1939.

I. Barnsfaðir Guðrúnar  var [[Jónatan Jónsson]], síðar  vitavörður í [[Stórhöfði|Stórhöfða]], f.  3. október 1857, d. 10. apríl 1939.

Útgáfa síðunnar 10. febrúar 2016 kl. 14:21

Guðrún Eiríksdóttir frá Vilborgarstöðum, síðar í Utah, fæddist 21. maí 1848 og lést 25. nóvember 1927 í Spanish Fork .
Foreldrar hennar voru Eiríkur Eiríksson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1783, d. 11. desember 1855, og síðari kona hans Guðrún Jónsdóttir yngri, húsfreyja, f. 1805, d. 1. júlí 1864.

Guðrún var með foreldrum sínum á Vilborgarstöðum til ársins 1855, er faðir hennar lést. Hún var í fyrstu með móður sinni þar, en var síðan tökubarn hjá Arnbjörgu Árnadóttur og Magnúsi Magnússyni 1860, var vinnustúlka þar 1863, vinnukona í Elínarhúsi 1870.
Guðrún fluttist að Raufarfelli u. Eyjafjöllum 1871, fór frá Selkoti þar að Teigi í Fljótshlíð 1874, kom frá Fljótshlíð að Garðinum 1876, fór frá Kirkjubæ 1879, var á Fit í Landbroti 1880, var á Suður-Fossi í Mýrdal 1880-1881. Þar eignaðist hún Guðrúnu með Jónatani Jónssyni, syni húsfreyju. Þá lá leiðin að Þórisholti í Mýrdal þar sem hún var vinnukona til 1882, er hún fluttist til Eyja.
Hún kom 35 ára að Kornhól 1882 með dóttur sína Guðnýju Jónatansdóttur eins árs.
Hún var vinnukona þar hjá Ísleiki Ólafssyni og Elísabetu Eiríksdóttur í lok ársins, en Guðný var niðursetningur á Miðhúsum hjá Vigfúsi Einarssyni og Guðnýju Guðmundsdóttur.
Guðrún var vinnukona í Boston 1883, „mormón“, og Guðný var á Miðhúsum. Hún var sjálfrar sín í Uppsölum 1885, fluttist til Utah 1886 með Guðnýju dóttur sína.
Í ritinu The Icelanders in Utah er tiplað á tveim mögulegum eiginmönnum hennar vestra, - með ættarnafninu Green og Douglass. Hún hafi verið skráð ekkja við manntalsskráningu 1900.

I. Barnsfaðir Guðrúnar var Jónatan Jónsson, síðar vitavörður í Stórhöfða, f. 3. október 1857, d. 10. apríl 1939.
Barn þeirra var
1. Guðný Jónatansdóttir, f. 4. október 1881. Hún fór til Utah með móður sinni 1886.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.