Guðný Helga Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. nóvember 2006 kl. 21:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. nóvember 2006 kl. 21:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Helga Guðmundsdóttir löggiltur endurskoðandi fæddist 22. nóv. 1968 í Eyjum.
Foreldrar: Guðmundur Helgi Guðjónsson, f. 1947 og k.h. Inga Dóra Þorsteinsdóttir, f. 1946.
Guðný varð cand.oecon.- viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1997, varð löggiltur endurskoðandi haustið 2005.
Hún var launamálafulltrúi í Fjármálaráðuneytinu 1998-2002. Hefur síðan unnið við endurskoðun.
Maki: Friðrik Björgvinsson lögfræðingur, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, f. 3. marz 1961 á Akranesi.
Foreldrar: Björgvin Sævar verkamaður, leiðbeinandi, f. 4. nóv. 1933, Hjalta vélstjóra, netagerðarmanns og síðar gúmmíviðgerðarmanns á Akranesi, f. 17. júní 1895 á Litla-Kroppi í Reykholtsdalshreppi í Borg., d. 30. júní 1983 á Akranesi, Benónýssonar (Hjalti var bróðir Jóns Benónýssonar formanns og útgerðarmanns í Eyjum) og barnsmóður Hjalta, Þóru starfsmanns Sláturfélags Suðurlands á Akranesi, f. 17. sept. 1910, d. 27. sept. 2004, Guðmundsdóttur. Móðir Friðriks og kona (skildu) Björgvins Sævars er Daisy Edda framreiðslukona, f. 26. ágúst 1932, Karls (Odds Karls Emils) sjómanns á Akureyri, en síðast í Rvk, f. 4. des. 1891, d. 17. nóv. 1983, Magnússonar og konu (1915) Odds Karls Emils, Önnu húsmóður, f. 13. júní 1895 á Ytri-Hóli í Kaupangssveit í Eyjafirði, d. 21. júlí 1980, Friðriksdóttur.
Börn: Andri, f. 14. nóv. 1990 í Rvk; Gunnar Helgi, f. 18. maí 1993 í Rvk; Alexander Elvar, f. 13. febr 1999 í Rvk; Kristófer Máni, f. 13. febr. 1999 í Rvk.

Heimildir:

  • Pers.
  • Klingenbergsætt.
  • Borgfirzkar æviskrárIII.297-298.
  • Ættir Þingeyinga.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.