Guðmundur Lárusson (Akri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Guðmundur Lárusson.

Guðmundur Lárusson rafvirkjameistari frá Akri fæddist þar 9. maí 1939.
Foreldrar hans voru Lárus Guðmundsson rafvirkjameistari, forstöðumaður, f. 13. nóvember 1907 í Byggðarholti, d. 18. febrúar 1985, og kona hans Gréta Vilborg Illugadóttir húsfreyja, f. 13. maí 1912 í Landlyst, d. 1. mars 1999.

Guðmundur ólst upp hjá foreldrum sínum. Hann nam rafvirkjun við Iðnskólann, tók sveinspróf 1959 og fékk meistararéttindi 1963.
Guðmundur var leiðbeinandi í unglingastarfi við Tómstundaheimilið í Eyjum, var rafvirki hjá Haraldi Eiríkssyni h.f. í Eyjum til 1962, vann hjá Rafröst s.f. í Reykjavík til 1965, var verkstjóri í Raftækjaverksmiðju Ólafs Tryggvasonar til áramóta 1980-1981, þá flokksstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og síðan verkstjórnandi hjá Orkuveitu Reykjavíkur til starfsloka 2009.




ctr
Guðmundur Lárusson og fjölskylda.
Efri röð: Jóhann Ragnar, Guðmundur, Lárus Steinþór.
Neðri röð: Aðalheiður Auðunsdóttir, Gréta Vilborg.


Kona Guðmundar, (10. júlí 1965), er Aðalheiður Auðunsdóttir húsfreyja, kennari, námsstjóri, f. 6. nóvember 1941 í Reykjarfirði í Reykjafjarðarhreppi Norður-Ísafjarðarsýslu. Foreldrar hennar voru Auðunn Jóhannesson bifreiðastjóri, húsgagnasmiður í Kópavogi, f. 17. desember 1908 í Skálmardal í Múlahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu, d. 3. febrúar 2003, og Gróa Jóhanna Salvarsdóttir húsfreyja, veðurathugunarmaður, f. 7. júní 1922 á Bjarnarstöðum í Reykjafjarðarhreppi, d. 27. október 2007.
Börn þeirra:
1. Gréta Vilborg Guðmundsdóttir MA-hönnuður frá Listaháskóla Íslands, f. 25. október 1965. Maður hennar var Úlfar Snær Arnarson kennari.
2. Lárus Steinþór Guðmundsson lyfja- og faraldursfræðingur, PhD (doktor) í líf- og læknavísindum, f. 19. september 1967. Kona hans var Kristín Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi.
3. Jóhann Ragnar Guðmundsson augnlæknir, f. 7. desember 1968. Unnusta hans er Jóhanna Karlsdóttir jógakennari.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Aðalheiður Auðunsdóttir.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.
  • Vestfirzkar ættir. Arnardalsætt – Eyrardalsætt. Ari Gíslason og V.B. Valdimarsson. V.B. Valdimarsson 1959-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.