Gréta Vilborg Illugadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gréta Vilborg Illugadóttir.

Gréta Vilborg Illugadóttir húsfreyja á Akri fæddist 13. maí 1912 á Brekku og lést 1. mars 1999 í Sunnuhlíð í Kópavogi.
Foreldrar hennar voru Illugi Hjörtþórsson formaður, f. 26. júlí 1886 á Eyrarbakka, d. 30. nóvember 1930, og kona hans Margrét Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 26. júní 1883 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 24. júní 1945.

Börn Illuga og Margrétar voru:
1. Elías Óskar Illugason formaður, síðast í Hafnarfirði, f. 1. nóvember 1909 á Brekku, d. 13. maí 1975.
2. Einar Sölvi Illugason vélvirkjameistari, f. 1. apríl 1911 á Brekku, d. 28. ágúst 1972.
3. Gréta Vilborg Illugadóttir húsfreyja á Akri, síðast í Kópavogi, f. 13. apríl 1912 á Brekku, d. 1. mars 1999.
4. Gunnlaugur Sæmundur Illugason, f. 28. nóvember 1914 í Landlyst, d. 2. júní 1916.
5. Gunnlaugur Hólm Illugason, f. 17. september 1917 í Landlyst, d. 24. nóvember 1918.
6. Guðný Inga Illugadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. júní 1920 í Landlyst, d. 16. nóvember 2001.
7. Þóra Hólm Illugadóttir Hinds húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 2. mars 1928 á Hjalteyri.
Barn Illuga með Guðnýju Eyjólfsdóttur, þá í Úthlíð, f. 7. júní 1890, d. 10. febrúar 1979:
8. Jóna Alda Illugadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. júlí 1918 í Úthlíð, d. 2. ágúst 1992.

Gréta Vilborg var með foreldrum sínum í æsku, á Brekku við fæðingu, var með þeim í Landlyst 1912 og enn 1920, í Bifröst 1924, á Búrfelli um skeið, en á Laugalandi 1927, á Hjalteyri 1928 og þar bjuggu þau, er Illugi lést 1930. Gréta var þar hjá móður sinni 1930 og 1934.
Þau Lárus giftu sig 1938, eignuðust Guðmund 1939 og bjuggu á Akri til 1973.
Þau fluttust í Kópavog.
Lárus lést 1985 og Gréta Vilborg 1999.

I. Maður Grétu Vilborgar, (7. maí 1938), var Lárus Guðmundsson rafvirkjameistari, f. 13. nóvember 1907 í Byggðarholti, d. 18. febrúar 1985.
Barn þeirra:
1. Guðmundur Lárusson rafvirki, f. 9. maí 1939.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.