„Guðmundur Lárusson (Akri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Guðmundur Lárusson. '''Guðmundur Lárusson''' rafvirkjameistari frá Akri fæddist þar 9. maí 1939.
Foreldrar han...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
1. Gréta Vilborg Guðmundsdóttir hönnuður, f. 25. október 1965. Maður hennar var Úlfar Snær Arnarson kennari.

1. Gréta Vilborg Guðmundsdóttir hönnuður, f. 25. október 1965. Maður hennar var Úlfar Snær Arnarson kennari.

2. Lárus Steinþór Guðmundsson lyfjafræðingur, f. 19. september 1967. Kona hans var Kristín Ólafsdóttir.

2. Lárus Steinþór Guðmundsson lyfjafræðingur, f. 19. september 1967. Kona hans var Kristín Ólafsdóttir.

3. Jóhann Ragnar Guðmundsson læknir, f. 7. desember 1968, ókvæntur..
3. Jóhann Ragnar Guðmundsson læknir, f. 7. desember 1968, ókvæntur.
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.
*Vestfirzkar ættir. Arnardalsætt – Eyrardalsætt. Ari Gíslason og V.B. Valdimarsson. V.B. Valdimarsson 1959-1968.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Iðnaðarmenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar á Akri]]
[[Flokkur: Íbúar við Landagötu]]

Útgáfa síðunnar 11. nóvember 2017 kl. 19:12

Guðmundur Lárusson.

Guðmundur Lárusson rafvirkjameistari frá Akri fæddist þar 9. maí 1939.
Foreldrar hans voru Lárus Guðmundsson rafvirkjameistari, forstöðumaður, f. 13. nóvember 1907 í Byggðarholti, d. 18. febrúar 1985, og kona hans Gréta Vilborg Illugadóttir húsfreyja, f. 13. maí 1912 í Landlyst, d. 1. mars 1999.

Guðmundur ólst upp hjá foreldrum sínum. Hann nam rafvirkjun við Iðnskólann, tók sveinspróf 1959 og fékk meistararéttindi 1963.
Guðmundur var leiðbeinandi í unglingastarfi við Tómstundaheimilið í Eyjum, var rafvirki hjá Haraldi Eiríkssyni h.f. í Eyjum til 1962, vann hjá Rafröst s.f. í Reykjavík til 1965, var verkstjóri í Raftækjaverksmiðju Ólafs Tryggvasonar til áramóta 1980-1981, en vinnur nú hjá Orkuveitunni.

Kona Guðmundar, (10. júlí 1965), er Aðalheiður Auðunsdóttir húsfreyja, kennari, námsstjóri, f. 6. nóvember 1941 í Reykjarfjarðarhreppi í Norður-Ísafjarðarsýslu. Foreldrar hennar voru Auðunn Jóhannesson bifreiðastjóri, húsgagnasmiður í Kópavogi, f. 16. desember 1908 í Skálmardal í Múlahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu og Gróa Jóhanna Salvarsdóttir húsfreyja, vitavörður, ritari, f. 7. júní 1922 á Bjarnarstöðum í Reykjafjarðarhreppi.
Börn þeirra:
1. Gréta Vilborg Guðmundsdóttir hönnuður, f. 25. október 1965. Maður hennar var Úlfar Snær Arnarson kennari.
2. Lárus Steinþór Guðmundsson lyfjafræðingur, f. 19. september 1967. Kona hans var Kristín Ólafsdóttir.
3. Jóhann Ragnar Guðmundsson læknir, f. 7. desember 1968, ókvæntur.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.
• Vestfirzkar ættir. Arnardalsætt – Eyrardalsætt. Ari Gíslason og V.B. Valdimarsson. V.B. Valdimarsson 1959-1968.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.