Guðmunda Hjörleifsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 13:50 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 13:50 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðmunda

Guðmunda Hjörleifsdóttir er fædd 23. apríl 1949. Foreldrar hennar eru Hjörleifur Guðnason múrarameistari og Inga Jóhanna Halldórsdóttir. Maður hennar er Þórður Sigursveinsson. Þau búa að Litlagerði 4.

Guðmunda starfaði lengi sem þerna á Herjólfi en fyrir nokkrum árum gerðist hún umboðsaðili Volare á Íslandi sem hún á og rekur í dag. Vikublaðið Fréttir veitir árlega viðurkenningu þeim sem hafa skarað fram úr í Vestmannaeyjum og árið 2004 var Guðmunda valin Eyjamaður ársins.