Guðjón Högni Pálsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. nóvember 2016 kl. 21:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. nóvember 2016 kl. 21:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðjón Högni Pálsson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Högni Pálsson fæddist 13. desember 1925 í Einarshöfn og lést 15. nóvember 2001 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Páll Þórðarson verkamaður í Varmadal, f. 3. október 1903, d. 19. maí 1992, og Guðný Regína Stefánsdóttir, f. 5. desember 1905, d. 24. júlí 1986

Börn Páls og Regínu voru:
1. Guðjón Högni Pálsson sjómaður, farmaður, hermaður, verslunarmaður, f. 13. desember 1925 í Einarshöfn, d. 15. nóvember 2001.
2. Páll Hörður Pálsson skipstjóri, f. 17. janúar 1931 á Ingólfshvoli, d. 7. maí 1990.

Börn Regínu og Steindórs Guðmundssonar og hálfsystkini Guðjóns Högna:
3. Laufey Steindórsdóttir verkakona, verslunarmaður á Stokkseyri, f. 24. nóvember 1937 í Langa-Hvammi, d. 13. desember 2001.
4. Bára Steindórsdóttir starfsmaður kaupfélags Árnesinga á Selfossi, f. 7. desember 1938, d. 6. júní 2006.
5. Einar Sigurður Steindórsson, f. 1. desember 1943.

Guðjón fluttist ungur til Stokkseyrar með móður sinni og bróður 1938, var sendur í fóstur. Hann fór til sjós 15 ára gamall og fór fljótlega í siglingar, lengst við strendur Ameríku í strandsiglingum.
Hann var um skeið í bandaríska hernum.
Þegar heim kom, vann hann mest störf, er tengdust Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli. Síðar vann hann lengi hjá Breiðholti hf. Síðustu árin vann hann ýmis verslunarstörf.

I. Fyrri kona Guðjóns var Al-Dora Patterson. Þau skildu.

II. Seinni kona hans var Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 15. maí 1922, d. 21. júlí 2000. Foreldrar hennar voru Jón Kr. Jónsson trésmíðameistari og framkvæmdastjóri, f. 24. ágúst 1896, d. 3. janúar 1969, og Vilhelmína Sigríður Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 22. júní 1900, d. 15. nóvember 1995.
Börn þeirra:
1. Stefán Þórður Guðjónsson, f. 15. september 1955, búsettur í Noregi.
2. Ása Hildur Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 26. október 1957.
3. Vilhjálmur Jón Guðjónsson, f. 24 apríl 1959.
4. Páll Guðjónsson, f. 15. desember 1962.
Barn Sigríðar frá fyrra hjónabandi:
5. Sigrún Jóna Jónsdóttir, f .11. desember 1946.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.