Guðbjört Magnúsdóttir (Bjarmalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. nóvember 2019 kl. 16:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. nóvember 2019 kl. 16:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðbjört Magnúsdóttir (Bjarmalandi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjört Magnúsdóttir frá Bjarmalandi, húsfreyja, gangavörður fæddist þar 31. maí 1924 og lést 27. júlí 2019.
Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon frá Geitagili í Örlygshöfn, skipasmiður í Dvergasteini og á Bjarmalandi, f. 6. október 1882, d. 22. október 1961 og k.h. Oddný Erlendsdóttir frá Skíðbakka í A-Landeyjum, húsfreyja, f. 11. október 1883, d. 9. ágúst 1969.
Börn Oddnýjar og Magnúsar:
1. Hulda Magnúsdóttir, búsett í Reykjavík, f. 29. júní 1913 í Ólafshúsum, d. 6. nóvember 1998.
2. Marta Sonja Magnúsdóttir, búsett í Reykjavík, f. 19. nóvember 1914 á Ingólfshvoli, d. 13. október 2010.
3. Magnús Adolf Magnússon, bifvélavirki, búsettur í Kópavogi, f. 20. júlí 1916 í Dvergasteini, d. 25. desember 1996.
4. Þórdís Magnúsdóttir, f. 15. september 1917 í Dvergasteini, d. 23. apríl 1939.
5. Jórunn Lilja Magnúsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 5. desember 1919 í Dvergasteini, d. 14. febr. 2008.
6. Erlendína Guðrún Magnúsdóttir, f. 18. júní 1921 í Dvergasteini, d. 21. september 1922.
7. Erlendur Magnússon, f. 13. mars 1923 á Bjarmalandi, d. 9. október 2003.
8. Guðbjört Magnúsdóttir, f. 31. maí 1924 á Bjarmalandi, d. 27. júlí 2019.
9. Elísabet Fjóla Magnúsdóttir, f. 24. nóvember 1925 á Bjarmalandi, d. 28. ágúst 2004. Hún varð kjörbarn Helgu Eggertsdóttur húsfreyju og Kristófers Péturs Eggertssonar skipstjóra á Akranesi.
10. Fanney Magnúsdóttir, f. 3. mars 1928 á Bjarmalandi, d. 4. október 2013.

Guðbjört Magnúsdóttir.

Guðbjört var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Reykjavíkur í byrjun fimmta áratugarins.
Hún vann meiri hluta starfsævi sinnar við fiskvinnslu, var löggiltur fiskimatsmaður, en frá 1988-1990 var hún gangavörður í Laugarnesskóla og í Grandaskóla frá 1990-1994.
Hún eignaðist Þórdísi Söndru 1945, en gaf hana kjörforeldrum.
Þau Ólafur Skúli giftu sig 1965, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Framnesvegi og Kaplasskjólsvegi í Reykjavík.

I. Barnsfaðir Guðbjartar var Helgi Emil Eysteinsson, f. 28. október 1918, d. 1. júní 1997.
Barn þeirra:
1. Þórdís Sandra Magnúsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 24. maí 1945, varð kjörbarn Magnúsar Kristjáns Jónssonar.

II. Maður Guðbjartar, (11. september 1965), var Ólafur Skúli Símonarson verkamaður, sjómaður, vörubifreiðastjóri, f. 20. desember 1921 á Fálkagötu 27, d. 16. mars 2008 á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Foreldrar hans voru Símon Sveinsson af Grímsstaðaholtinu, útvegsbóndi, f. 25. nóvember 1887, d. 6. febrúar 1980, og Margrét Árnadóttir frá Eyrarbakka, húsfreyja, f. 28. september 1886, d. 28. janúar 1941.
Barn þeirra:
2. Símon Gísli Ólafsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 25. maí 1965. Kona hans Lára Arnfinnsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 9. september 2019 og 8. júní 2008. Minning Guðbjartar og Ólafs.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.