Guðbjörg Björnsdóttir (Norður-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 17:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 17:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðbjörg Björnsdóttir (Norður-Gerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörg Björnsdóttir situr og heldur á Indu(Indlaugu). Við hlið hennar er Guðjón Björnsson. Standandi frá vinstri: Hallbera Illugadóttir fyrri kona Björns Eiríks, Jóna Ingibjörg dóttir Guðbjargar og líklega Guðbjörg Árný Björnsdóttir dóttir Hallberu.

Guðbjörg Björnsdóttir húsfreyja í Norður-Gerði fæddist 28. júní 1854 og lést 4. maí 1933.
Foreldrar hennar voru Björn Einarsson, síðar bóndi á Kirkjubæ og kona hans Guðríður Hallvarðsdóttir húsfreyja.
Guðbjörg fæddist í Neðri-Dal undir Eyjafjöllum, fluttist með foreldrum sínum frá Forsæti í Sigluvíkursókn til Eyja 1859. Á mt. 1860 er hún með þeim í Sjólyst, 1890 er hún gift kona í Stóra-Gerði með Jón, börnin tvö og móður sína Guðríði.

Maður Guðbjargar var Jón Jónsson bóndi í Norður-Gerði, fæddur 22. júlí 1854, dáinn 1. apríl 1925.
Börn Guðbjargar og Jóns voru:
1. Björn Eiríkur, f. 16. desember 1885, d. 30. apríl 1979.
2. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, f. 25. júní 1887, d. 2. nóvember 1972.

Systkini Guðbjargar voru:
Guðjón bóndi á Kirkjubæ,
Finnbogi bóndi í Norðurgarði,
Ingibjörg í Pétursborg, kona Sigurðar Vigfússonar.


Heimildir