Guðbjörg Björnsdóttir (Norður-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. mars 2013 kl. 16:58 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. mars 2013 kl. 16:58 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðbjörg Björnsdóttir''' húsfreyja í Norður-Gerði fæddist 28. júní 1854 og lést 4. maí 1933.<br> Foreldrar hennar voru Björn Einarsson, síðar bóndi á [[Kirk...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Björnsdóttir húsfreyja í Norður-Gerði fæddist 28. júní 1854 og lést 4. maí 1933.
Foreldrar hennar voru Björn Einarsson, síðar bóndi á Kirkjubæ og kona hans Guðríður Hallvarðsdóttir húsfreyja.
Guðbjörg fæddist í Neðri-Dal undir Eyjafjöllum, fluttist með foreldrum sínum frá Forsæti í Sigluvíkursókn til Eyja 1859. Á mt. 1860 er hún með þeim í Sjólyst, 1890 er hún gift kona í Stóra-Gerði með Jón, börnin tvö og móður sína Guðríði.

Maður Guðbjargar var Jón Jónsson bóndi í Norður-Gerði, fæddur 22. júlí 1854, dáinn 1. apríl 1925.
Börn Guðbjargar og Jóns voru:
1. Björn Eiríkur, f. 16. desember 1885, d. 30. apríl 1979.
2. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, f. 25. júní 1887, d. 2. nóvember 1972.

Systkini Guðbjargar voru:
Guðjón bóndi á Kirkjubæ,
Finnbogi bóndi í Norðurgarði,
Ingibjörg í Pétursborg, kona Sigurðar Vigfússonar.


Heimildir