Golfklúbbur Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. ágúst 2007 kl. 11:34 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. ágúst 2007 kl. 11:34 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Tildrög þess að hafið var að leika golf í Vestmannaeyjum má rekja til þess er Magnús Magnússon, skipstjóri frá Boston, USA, var á ferð í Eyjum sumarið 1937. Þá hafði hann kennt nokkrum mönnum undirstöðuatriðin í golfíþróttinni og reglur leiksins. Í framhaldinu ákváðu nokkrir af þeim, sem fallið höfðu fyrir íþróttinni, þeir Þórhallur Gunnlaugsson, Axel Halldórsson, Ólafur Halldórsson, Einar Guttormsson, Ágúst Bjarnason og Georg Gíslason, ásamt fleirum að boða til stofnfundar Golfklúbbs Vestmannaeyja.

Iðandi mannlíf á golfvellinum. Grínið á 18. holu og Golfskálinn.

Fundurinn var haldinn þann 4. des. 1938 og voru 20 mættir. Í bráðabirgðastjórn og laganefnd voru kosnir Þórhallur Gunnlaugsson, formaður, Georg Gíslason, ritari og Ólafur Halldórsson, gjaldkeri. Framhaldsstofnfundur var haldinn 11. desember og voru þessir sömu menn kosnir í fyrstu stjórnina ásamt meðstjórnendunum Einari Guttormssyni og Viggó Björnssyni.

Stofnendur Golfklúbbs Vestmannaeyja:

 
Golf leikið í stórbrotnu umhverfi. Smáeyjarnar Hani, Hæna og Hrauney í bakgrunni.

Stofendur Golfklúbbs Vestmannaeyja voru:

Axel Halldórsson Hinrik Jónsson Marinó Jónsson
Ágúst Bjarnason Hjálmar Eiríksson Ólafur Halldórsson
Einar Guttormsson Ingibjörg Ólafsdóttir
(eiginkona
Þórhalls Gunnlaugs.)
Páll Jónsson (Púlli)
Einar Sigurðsson Ingi Kristmannsson Rannveig Vilhjálmsdóttir
Ella Halldórsdóttir Jóhann Bjarnasen (yngri) Carl Rosinkjær
Fanney Jónsdóttir Jóhannes Sigfússon Sigurbjörg Magnúsdóttir
Georg Gíslason Jón Ólafsson Sigurður Ólason
Gissur Erlingsson Karl Kristmannsson Tómas Guðjónsson
Guðlaugur Gíslason Karl Sigurhansson Tryggvi Ólafsson
Guðlaugur Stefánsson Lárus Ársælsson Unnur Magnúsdóttir
Guðfinna Kristjánsdóttir Leifur Sigfússon Viggó Björnsson
Hafsteinn Snorrason Magnús Bergsson Þórhallur Gunnlaugsson
Haraldur Eiríksson

Formenn Golfklúbbs Vestmannaeyja