Goðasteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2007 kl. 21:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2007 kl. 21:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Goðasteinn við Kirkjubæjarbraut 11 var byggt árið 1945.
Þorsteinn Víglundsson skólastjóri og sparisjóðsstjóri byggði húsið og bjó þar og fór kennsla í netabætingum, tóvinnu og meðferð véla m.a. fram í kjallara hússins. Það var dæmt ónýtt eftir gos vegna hitaskemmda en var endurnýjað.

Húsið fyrir gos. Til vinstri sést Hof, til hægri sér í Þurrkhúsið.
Goðasteinn eftir gos

Í húsinu bjuggu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973 hjónin Þorsteinn Víglundsson og Ingigerður Jóhannsdóttir ásamt dóttur sinni Ingu Dóru, manni hennar Guðmundi Helga Guðjónssyni og og dætrum þeirra Ingigerði og Guðnýju Helgu.

Árið 2006 bjuggu Vilborg Sigurðardóttir og Gísli Guðnason í húsinu.


Heimildir