Georg Sigurðsson (Brekastíg 19)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. nóvember 2019 kl. 17:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. nóvember 2019 kl. 17:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Georg Sigurðsson á Georg Sigurðsson (Brekastíg 19))
Fara í flakk Fara í leit

Georg Sigurðsson verkamaður fæddist 23. janúar 1930 á Borgarhól.
Foreldrar hans voru Sigurður Einarsson frá Ysta-Skála u. Eyjafjöllum, sjómaður, kyndari, f. 29. nóvember 1904, drukknaði í Bretlandi 6. febrúar 1943, og kona hans Oddný Ólafía Eyjólfsdóttir frá Haraldsstöðum í Seyðisfirði, húsfreyja, f. 18. febrúar 1904 á Vestdalseyri þar, d. 18. september 1970.

Börn Ólafíu og Sigurðar:
1. Georg Sigurðsson verkamaður, f. 23. janúar 1930 á Borgarhóli. Kona hans Ása Valtýsdóttir.
2. Eyrún Anna Sigurðardóttir, f. 21. júní 1931 á Borgarhóli, d. 9. júlí 1931.
3. Agnar Reynir Sigurðsson verkamaður, f. 5. ágúst 1933 á Goðafelli, d. 5. desember 1999. Kona hans Eyrún Auðunsdóttir.

Georg var með foreldrum sínum í æsku, en hann missti föður sinn 13 ára.
Georg bjó með móður sinni að Brekastíg 19, var verkamaður, vann lengst hjá Vinnslustöðinni.
Þau Ása giftu sig 1954, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í fyrstu á Brekastíg 19, en síðan á Strembugötu 12.
Ása lést 1981.
Georg býr á Eyjahrauni 8.

Kona Georgs, (31. október 1954), var Ása Valtýsdóttir frá Kirkjufelli, húsfreyja, f. 7. ágúst 1933 á Hvoli, d. 24. apríl 1981.
Börn þeirra:
1. Sigurður Georgsson sjómaður, f. 30. apríl 1954. Kona hans Elínborg Óskarsdóttir.
2. Valtýr Georgsson verkstjóri í Áhaldahúsinu, f. 19. apríl 1956. Kona hans Sigríður Guðbrandsdóttir.
3. Guðni Georgsson pípulagningamaður, f. 14. október 1957. Kona hans Vigdís Rafnsdóttir.
4. Jóhann Brandur Georgsson netamaður, f. 30. október 1959. Kona hans Ragna Birgisdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.