Garðurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 15:59 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 15:59 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Garðurinn stóð við Strandveg 3. Þetta var elsti verslunarstaður í Eyjum en auk verslunar var líka búið í húsinu og verbúð Hraðfrystistöðvarinnar. Áður var þar nefnt Dönskuhús eða Danski Garður. Í Dönskuhúsum var fólk geymt í Tyrkjaráninu og var haldið þar, uns það var flutt út í skip. Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu



Heimildir

  • Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.