Friðrik Steinsson (Ingólfshvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júní 2021 kl. 14:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júní 2021 kl. 14:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Friðrik Steinsson (Ingólfshvoli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Steinsson frá Ingólfshvoli, bakari fæddist 11. nóvember 1907 á Akureyri og lést 25. júlí 1975.
Foreldrar hans voru Steinn Sigurðsson klæðskeri á Ingólfshvoli, síðar í Reykjavík, f. 6. apríl 1873 í Vestra-Fróðholti í Rang., d. 9. nóvember 1947, og kona hans Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir húsfreyja, kennari, f. 4. febrúar 1878 í Breiðagerði í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, d. 4. júní 1968.

Friðrik var með foreldrum sínum í æsku, á Akureyri og flutti með móður sinni til Eyja 1909, bjó með foreldrum sínum á Skjaldbreið og Ingólfshvoli.
Hann nam bakaraiðn og vann við hana.
Þau Soffía giftu sig 1930, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Reykjavík.
Friðrik lést 1975 og Soffía 1996.

I. Kona Friðriks, (1930), var Soffía Símonardóttir húsfreyja í Reykjavík og á Selfossi, f. 7. apríl 1907 á Selfossi, d. 9. júlí 1996. Foreldrar hennar voru Símon Jónsson bóndi, trésmiður, brúarvörður, f. 7. maí 1864 á Selfossi, d. 24. september 1937, og kona hans Sigríður Sæmundsdóttir húsfreyja, f. 10. júlí 1876 í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi, d. 15. maí 1965 á Selfossi.
Börn þeirra:
1. Friðrik Friðriksson verslunarmaður í Reykjavík, f. 19. september 1930 í Reykjavík. Fyrrum kona hans Sigríður Sumarliðadóttir.
2. Sigríður Friðriksdóttir húsfreyja á Blöndubakka í Tunguhreppi, N.- Múl., f. 6. desember 1945 í Reykjavík, d. 30. nóvember 1992. Fyrrum sambúðarmaður Kjartan Skaftason. Maður hennar Árni Jóhannsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.