„Framfarafélag Vestmannaeyja“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 12: Lína 12:
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Þorsteinn E. Víglundsson. ''Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum''. Apríl 1953.}}
* Þorsteinn E. Víglundsson. ''Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum''. Apríl 1953.}}
[[Flokkur:Félög]]
[[Flokkur:Félög]]

Útgáfa síðunnar 14. júní 2006 kl. 09:40

Hinn 28. maí 1893 komu nokkrir Eyjamenn saman á fund til þess að ræða um stofnun búnaðarfélags í Vestmannaeyjum. Hvatamaðurinn að þessum fundi var Jón Magnússon þáverandi sýslumaður í Vestmannaeyjum. Eftir nokkrar umræður þá komust fundarmenn að þeirri niðurstöðu, að stofnun búnaðarfélags gæti borið sýnilegan ávöxt í framförum í Vestmannaeyjum sem og annars staðar á landinu.

Það var því ákveðið að kjósa í þriggja manna nefnd til þess að semja lög fyrir félagið. Í henni voru: Sigurður Sigurfinnsson bóndi og skipstjóri í Dalbæ, Jón Jónsson hreppstjóri og Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi.

13. ágúst var annar stofnfundurinn haldinn og þar var fallist á að félagið skyldi heita framfarafélag í stað búnaðarfélags. Þótti það nafn eiga betur við eins og hagaði til í Vestmannaeyjum.

Tilgangur félagsins var að styðja að framförum sveitarmanna í sem flestum málum, einkum í búnaði og öðrum atvinnuvegum.

Sigurður Sigurfinnsson hreppstjóri var formaður Framfarafélags Vestmannaeyja alveg frá stofnun þess 1893 og til félagsslita 1914.



Heimildir

  • Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Apríl 1953.