Flakkarinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júní 2006 kl. 12:25 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júní 2006 kl. 12:25 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Leiðrétti texta)
Fara í flakk Fara í leit

Stór sprenging varð í aðalgígnum í upphafi marsmánaðar, sem varð til þess að stórt bjarg brotnaði úr norðurhlið eldkeilunnar sem hafði myndast. Þessi risavaxni hraunklettur flaut ofan á hrauninu til norðurs, og hlaut hann nafnið Flakkarinn. Hann ferðaðist um 200 metra á dag og var mikill ótti um að hann flyti út í höfn og lokaði höfninni þannig. Hann stoppaði rétt austan við Kornhól fyrir tilstilli hraunkælingarinnar, eftir að hafa brotnað í tvo parta þar fyrir sunnan. Hann stendur enn þar í dag, og er útsýnispallur þar hjá.