Flakkarinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Flakkarinn er stór hraunhóll sem myndaðist í Heimaeyjargosinu árið 1973. Stór sprenging varð í aðalgígnum í upphafi marsmánaðar, sem varð til þess að stórt bjarg brotnaði úr norðurhlið eldkeilunnar sem hafði myndast. Þessi risavaxni hraunklettur flaut ofan á hrauninu til norðurs, og hlaut hann nafnið Flakkarinn. Hann ferðaðist um 200 metra á dag og var mikill ótti um að hann flyti út í höfn og lokaði höfninni þannig. Hann stoppaði rétt austan við Kornhól fyrir tilstilli hraunkælingarinnar, eftir að hafa brotnað í tvo parta þar fyrir sunnan. Hann stendur enn þar í dag, og er útsýnispallur þar hjá.