Emil M. Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 08:18 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 08:18 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Emil Marteinn Andersen fæddist 31. júlí 1917 og lést 17. mars 1995. Hann bjó að Heiðarvegi 13. Bróðir Emils var Willum.

Emil var formaður með mótorbátinn Metu.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Emil:

Malla geta garpsins á
góða seta hvetur,
þegar fetar þungan sjá
þjónað Metu getur.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Annar Andersen kannar
Emil fiskanna hylinn.
Öldu í kófi köldu,
kunnur á Júlíu unna.
Lagar fær lén óragur,
ljóðurinn skarpi þjóðar.
Sólbakka fyrða frakka
formenn ég segja þori.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.