„Elín B. Jóhannsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Elín Bjarney Jóhannsdóttir''' frá Eskihlíð við Skólaveg 36, húsfreyja, kaupmaður, bókari fæddist þar 19. september 1944.<br> Foreldrar hennar voru Jó...)
 
m (Verndaði „Elín B. Jóhannsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 29. október 2020 kl. 11:35

Elín Bjarney Jóhannsdóttir frá Eskihlíð við Skólaveg 36, húsfreyja, kaupmaður, bókari fæddist þar 19. september 1944.
Foreldrar hennar voru Eysteinn Jóhann Eysteinsson sjómaður, verkamaður, f. 23. febrúar 1907, d. 21. febrúar 1998, og kona hans Sigríður Júnía Júníusdóttir húsfreyja, f. 28. maí 1907, d. 7. maí 1987.

Börn Sigríðar Júníu og Jóhanns:
1. Selma Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1942 á Skólavegi 36. Maður hennar Gunnar Jónsson.
2. Elín Bjarney Jóhannsdóttir húsfreyja, kaupmaður, bókari, f. 19. september 1944 á Skólavegi 36. Maður hennar Svavar Sigmundsson.
Barn Sigríðar Júníu:
3. Sigrún Júnía Einarsdóttir húsfreyja, kennari, f. 25. febrúar 1938. Maður hennar Ástráður Helgfell Magnússon.

Elín Bjarney var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð fjórða bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1961.
Þau Svavar ráku byggingavöruverslunina Brimnes frá 1981-2006.
Þau giftu sig 1965 eignuðust þrjú börn. Þau hafa búið á Heiðarvegi 27a.

I. Maður Elínar Bjarneyjar, (25. desember 1965), er Svavar Sigmundsson húsasmíðameistari, kaupmaður, f. 16. nóvember 1944 í Stafnesi Börn þeirra:
1. Héðinn Svavarsson sjúkraþjálfari í Reykjavík, f. 21. janúar 1965. Kona hans Jóna Guðmundsdóttir.
2. Jóhanna Sigríður Svavarsdóttir húsfreyja, lærður kennari, rekur ásamt manni sínum hvalaskoðunarfyrirtæki á Húsavík, f. 11. janúar 1972. Maður hennar Stefán Guðmundsson.
3. Svavar Örn Svavarsson sjómaður, f. 26. maí 1976. Barnsmóðir hans Elísabet Hólm Júlíusdóttir. Sambúðarkona Sara Maria Pålson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.