Einar Sigurfinnsson (yngri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 10:57 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 10:57 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Sigurfinnsson fæddist 14. febrúar 1940 og lést 19. maí 2004. Foreldrar hans voru Sigurfinnur Einarsson og Anna Ester Sigurðardóttir. Árið 1959 kvæntist hann Margréti Bragadóttur. Þau eignuðust tvo syni, Braga og Jóhannes Ágúst.

Einar stundaði sjómennsku í langan tíma en frá 1992 starfaði hann í Endurvinnslunni við að taka á móti dósum og flöskum.

Einar hafði viðurnefnið klink og var í daglegu tali kallaður Einar klink. Einari var ekki illa við viðurnefnið því einkanúmerið á bílnum hans var KLINK. Einar var góður söngvari og söng á sínum yngri árum með danshljómsveitum.


Heimildir