Sigurfinnur Einarsson (Fagradal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Sigurfinnur Einarsson)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurfinnur í maí 1990.
Sigurfinnur ásamt föður og bræðrum. F.v. Sigurbjörn, Einar, Sigurfinnur og Guðmundur.

Sigurfinnur Einarsson verkstjóri fæddist 3. desember 1912 og lést 23. febrúar 2004. Foreldrar hans voru Einar Sigurfinnsson og Gíslrún Sigurbergsdóttir.

Hann var kvæntur Önnu Ester Sigurðardóttur. Þau áttu börnin Einar, Sigurfinn og Þorbjörgu.

Hann bjó síðustu ár ævi sinnar á Hraunbúðum.

Frekari umfjöllun

Sigurfinnur Einarsson sjómaður, stýrimaður, verkstjóri fæddist 3. desember 1912 á Efri-Steinsmýri í Meðallandi og lést 23. febrúar 2004. Foreldrar hans voru Einar Sigurfinnsson bóndi, síðar sendill við Símstöðina, f. 14. september 1884, d. 17. maí 1979, og fyrri kona hans Gíslrún Sigurbergsdóttir húsfreyja, f. 21. júní 1887, d. 1. janúar 1913.

Móðir Sigurfinns fórst í eldsvoða, er hann var tæplega mánaðar gamall. Hann var með föður sínum á Efri-Steinsmýri til 1913, var tökubarn í Háu-Kotey í Meðallandi 1913-1915, var með föður sínum í Lágu-Kotey þar 1915-1926, en fór þá til Reykjavíkur. Hann kom til föður síns að Iðu í Biskupstungum 1929 frá Núpum í Ölfusi og var með honum til 1939, en fluttist þá til Eyja.
Sigurfinnur var sjómaður og verkamaður, var lengi stýrimaður á Emmu hjá Eyjólfi á Bessastöðum. Síðar vann hann hjá Ísfélaginu og var þar verkstjóri.
Þau Anna Ester bjuggu á Hásteinsvegi 2, (Heiðardal) við giftingu 1941 og við fæðingu Sigurfinns 1944, en á Bárustíg 15, (Baðhúsinu) við fæðingu Þorbjargar 1949.
Þau bjuggu síðar í Fagradal, fluttust til Hveragerðis um skeið við Gos, en fluttust að Faxastíg 35 1978.
Anna Ester lést 1980.
Sigurfinnur bjó með Guðrúnu Ólafsdóttur frá 1990.
Hann dvaldi að síðustu í Hraunbúðum, lést 2004 á Sjúkrahúsinu.

I. Kona hans, (9. ágúst 1941), var Anna Ester Sigurðardóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1919, d. 19. janúar 1980.
Börn þeirra:
1. Einar Sigurður Sigurfinnsson afgreiðslumaður, f. 14. febrúar 1940, d. 19. maí 2004.
2. Sigurfinnur Sigurfinnsson myndlistarkennari, meðhjálpari, f. 18. júní 1944.
3. Þorbjörg Sigurfinnsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 5. júní 1949, d. 27. nóvember 1996.

II. Sambýliskona Sigurfinns frá 1990 var Guðrún Ólafsdóttir frá Kaldrananesi í Mýrdal, f. 26. júlí 1919, d. 30. ágúst 2005.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 28. febrúar 2004. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.