„Dýrfinna Guðnadóttir (Dölum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Dýrfinna Guðnadóttir''' húsfreyja í Dölum fæddist 2. september 1823 í Reynisholti í Mýrdal og lést 31. maí 1866.<br> Foreldrar hennar voru Guðni Guðbrandss...)
 
m (Verndaði „Dýrfinna Guðnadóttir (Dölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 24. febrúar 2014 kl. 19:29

Dýrfinna Guðnadóttir húsfreyja í Dölum fæddist 2. september 1823 í Reynisholti í Mýrdal og lést 31. maí 1866.
Foreldrar hennar voru Guðni Guðbrandsson bóndi í Reynisholti, f. 1788 á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, d. fyrir 1842, og kona hans Guðný Jónsdóttir húsfreyja, f. 1796 á Höfðabrekku í Mýrdal, d. 10. október 1831 í Reynisholti.

Dýrfinna var tökubarn í Reynisholti 1835.
Hún var 17 ára vinnukona í Sæmundarhjalli 1840, (þá sögð Guðmundsdóttir), vinnukona hjá Madömu Roed í Sjólyst 1845.
Hún var bústýra í Dölum 1850, (þau giftu sig síðar á árinu), hjá Einari Jónssyni eldri, sem þá var ekkill eftir Margréti Guðmundsdóttur eldri, og ekkja var hún þar 1855 með Eyvindi Jónssyni fyrirvinnu og börnunum Brynjólfi Einarssyni 4 ára og Þorgerði Eyvindsdóttur á fyrsta ári, (sögð þar Einarsdóttir), en hún dó á því ári.
Við skráningu 1860 var Dýrfinna húskona, ekkja í Hvítingum með son sinn Brynjólf Einarsson 9 ára hjá sér.
Hún lést 1866.

I. Maður Dýrfinnu, (22. október 1850), var Einari Jónsson eldri, bóndi í Dölum, f. 1806, d. 26. nóvember 1852. Hún var síðari kona hans.
Börn þeirra hér:
1. Margrét Einarsdóttir, f. 29. desember 1850, d. 15. janúar 1851 „af innvortis sjúkleika“.
2. Brynjólfur Einarsson sjómaður, f. 16. maí 1852, fórst með Gauki 13. mars 1874.

II. Sambýlismaður Dýrfinnu og fyrirvinna var Eyvindur Jónsson, f. 2. mars 1826, d. 26. ágúst 1911.
Börn þeirra hér:
3. Þorgerður Eyvindsdóttir, f. 19. ágúst 1854, d. 30. október 1854 „af barnaveiki“.
4. Þorgerður Eyvindsdóttir, f. 27. ágúst 1855, d. 13. nóvember 1855 „af barnaveiki“.
5. Andvana stúlkubarn, f. 6. febrúar 1857.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.