„Christian Jakob Kemp (Godthaab)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 19: Lína 19:
*Manntöl.
*Manntöl.
*Prestþjónustubækur.}}
*Prestþjónustubækur.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Verslunarstjórar]]
[[Flokkur: Verslunarstjórar]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Godthaab]]
[[Flokkur: Íbúar í Godthaab]]

Útgáfa síðunnar 13. júní 2015 kl. 22:14

Christian Jakob Kemp verslunarstjóri í Godthaab fæddist 1802 og lést í Eyjum 7. mars 1839.
Hann kom til Eyja frá Kaupmannahöfn 1833, en kona hans og tvö börn 1834. Með konu hans komu Ane Johanne Grüner þjónustustúlka, síðar nefnd Madama Roed í Frydendal, og Johanne Ludvike Kemp systir verslunarstjórans.

Hjónin eignuðust 4 börn í Eyjum, en misstu tvö þeirra úr ginklofa og eitt barn 5 mánaða úr „krampa“, líklega ginklofi.
Christian Jakob verslunarstjóri lést 1839. Ekkja hans mun hafa flust frá Eyjum 1839. Á því ári var Jess Thomsen Christensen orðinn verslunarstjóri í Godthaab.

Kona Christians Jakob Kemp var Erasmine Elisabeth Kemp húsfreyja, f. 1802.
Börn þeirra hér:
1. Gyrette Kemp, f. 1831.
2. Christian Kemp, f. 1832.
Börn þeirra fædd í Eyjum voru
3. Frederik Kemp, f. 29. janúar 1835, d. 19. febrúar 1835 úr ginklofa.
4. Doris Kemp, f. 8. október 1836, á lífi 1838.
5. Helge Kemp, f. 1. september 1837, d. 5. október 1837 úr ginklofa.
6. Thora Elisabeth Kemp, f. 4. september 1838, d. 7. febrúar 1839 úr „krampa“, líklega ginklofi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.