Erasmine Elisabeth Kemp (Godthaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Erasmine Elisabeth Kemp húsfreyja í Godthaab fæddist 7. desember 1801 í Kaupmannahöfn og lést þar 6. febrúar 1891.
Foreldrar hennar voru Frederik Jensen kennari, f. 1772, og Ane Margrethe Thim, f. 1776.

Erasmine kom til Eyja frá Danmörku með tvö börn þeirra Christians 1834.
Með henni komu Ane Johanne Grüner þjónustustúlka, síðar nefnd Madama Roed í Frydendal, og Johanne Ludvike Kemp systir verslunarstjórans.
Þau Christian giftu sig 1830, eignuðust sex börn þar af 4 í Eyjum, en misstu tvö þeirra úr ginklofa og eitt barn 5 mánaða úr „krampa“, líklega ginklofi.
Christian Jakob verslunarstjóri lést 1839. Erasmine Elisabeth mun hafa flust frá Eyjum á því ári, lést 1891 í Kaupmannahöfn. Þá var Jess Thomsen Christensen orðinn verslunarstjóri í Godthaab.

Maður Erasmine Elisabeth, (12. nóvember 1830), var Christian Jakob Kemp verslunarstjóri í Godthaab, f. 16. febrúar 1802 í Holmens, d. 17. mars 1839 í Eyjum.
Börn þeirra hér:
1. Gyrette Kemp, f. 12. ágúst 1831 i Gentofte í Danmörku, d. 25. september 1886.
2. Christian Kemp, f. 1832, var í Gentofte 1840.
Börn þeirra fædd í Eyjum voru
3. Frederik Kemp, f. 29. janúar 1835, d. 19. febrúar 1835 úr ginklofa.
4. Doris Kemp, búsett í Juellinge í Danmörku, f. 8. október 1836 í Godthaab, d. 10. september 1909 í Danmörku. Maður hennar George Alexander Ulrich.
5. Helge Kemp, f. 1. september 1837, d. 5. október 1837 úr ginklofa.
6. Thora Elisabeth Kemp, f. 4. september 1838, d. 7. febrúar 1839 úr „krampa“, líklega ginklofi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.