Bílaeign

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júní 2006 kl. 09:26 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júní 2006 kl. 09:26 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Bílaeign Vestmannaeyinga hefur verið þó nokkur í gegnum tíðina og mörgum komið á óvart óvenjumikil bílanotkun miðað við smæð Heimaeyjar.

Fyrsta bifreiðin var skrásett hér 1919 og var það Maxwell flutningabifreið í eigu Eyþórs Þórarinssonar og fleiri. Reyndist sú bifreið illa, enda bærinn síður en svo hannaður til bifreiðaaksturs. Oddgeir Þórarinsson, bróðir Eyþórs, var ökumaður bílsins og var hann fyrsti lögskráði bílstjórinn í bænum. Margir töldu bílinn vera háskatæki og í þokkabót tiltölulega dýrt að fá hann leigðan.



Heimildir

  • Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja, I. bindi. Reykjavík, Fjölsýn forlag, 1989.