Blik 1976/Vélbátar í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. ágúst 2009 kl. 15:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. ágúst 2009 kl. 15:13 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Blik 1976/ Vélbátar Vestmannaeyinga

Blik á í fórum sínum 50-60 myndir af vélbátum Vestmannaeyinga frá fyrstu áratugum aldarinnar. Að þessu sinni birtum við 20 myndir af bátum þessum. Flestir voru bátarinir kunnir fyrir aflasæld og formennirnir viðurkenndir dugnaðar sjómenn. Karl Guðmundsson frá Reykholti (nr.15) við Urðaveg gaf Bliki fyrir nokkrum árum skýringarnar við myndirnar og tók þann fróðleik úr bókum Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja. Blik kann honum kærar þakkir fyrir þá hjálp.

V/b Svanur, VE 152





V/b Svanur, VE 152, 10 rúmlestir að stærð. Hann var smíðaður í Danmörku árið 1911. Eigendur voru Ágúst Gíslason í Valhöll o.fl. Fyrsti formaður á báti þessum var Jóhann Einarsson, Brimnesi, og svo Ólafur Ingileifsson, síðar kenndur við Heiðarbæ vestan við Strembuhæðina.

V/b Ásdís, VE 144
V/b Sísí, VE 265



V/b Ásdís, VE 144. Eigandi var Gísli J. Johnsen. Báturinn var smíðaður í Danmörku árið 1912. Svo sem greint var frá í Bliki 1974, bls. 138, þá kom norskur söngkór til Vestmannaeyja árið 1924 og söng hér bæði í samkomuhúsi og úti undir berum himni. Svo sem sést á myndinni, þá er vélbáturinn Ásdís hlaðinn fólki. Verið er að flytja norska söngkórinn frá Bæjarbryggjunni til skips. – Húfur kórfélaganna á lofti. – Eyjabúar kvaddir.





V/b Sísí, VE-265. Bátur þessi var smíðaður í Danmörku, líklega 1914. Eigandi Gísli J. Johnsen. Fyrsti formaður á honum var Árni Finnbogason frá Norðurgarði.

V/b Ísleifur, VE 63






V/b Ísleifur, VE 63, 30 rúmlestir að stærð. Hann var smíðaður í Reykjavík árið 1916 og keyptur til Eyja 1928. Eigandi: Ársæll Sveinsson útgerðarmaður, sem var formaður á bátnum um árabil. Báturinn var tekinn út af skrá Bátaábyrgðarfélagsins árið 1967.

Sjöstjarnan, VE 92




V/b Sjöstjarnan, VE 92, 55 rúmlestir að stærð. Bátur þessi var smíðaður 1916 og var gerður út frá Akureyri fyrstu árin. Eigandi í Vestmannaeyjum var Tómas M. Guðjónsson o. fl., Höfn (nr. 1) við Bakkastíg. Fyrsti formaður á honum í Eyjum var Ásmundur Friðriksson frá Stóru-Löndum.

V/b Skúli fógeti, VE







V/b Skúli fógeti. Byggður í Vestmannaeyjum 1916, 11,75 rúmlestir að stærð. Tapaðist á vertíð 1938.

V/b Faxi, VE





V/b Faxi, sem áður hét Hilmir, VE 282; 38 rúmlestir að stærð. Bátur þessi var smíðaður í Danmörku árið 1917 og keyptur til Vestmannaeyja 1929. Eigendur: Gunnar Ólafsson o. fl. Fyrsti formaður á bátnum í Eyjum var Runólfur Sigfússon. Þegar þetta er skráð, er eigandi bátsins Haukur útgerðarmaður og skipsjóri Jóhannson.

V/b Halkion, VE 27





V/b Halkion, VE 27. Þessi bátur hét áður Kári og var smíðaður í Danmörku 1917, 35 smálestir að stærð. Fyrsti eigandi í Eyjum var Sigurður útgerðarmaður og formaður Bjarnason í Svanhól (nr. 24) við Austurveg.

V/b Ingólfur Arnarson, VE 187






V/b Ingólfur Arnarson, VE 187, 11 rúmlestir. Hann var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1917. Það gjörði Guðmundur Jónsson á Háeyri. Eigendur þá: Bjarni Einarsson útgerðarmaður í Hlaðbæ o. fl. formaður var fyrstu árin Sveinn Jónsson á Landamótum (nr.3 A) við Vesturveg.

V/b Halkion, VE 205






V/b Halkion, VE 205, 14 rúmlestir. Hann var smíðaður á Stokkseyri árið 1917. Eigandi bátsins var Stefán Guðlaugsson í Gerði o. fl. Stefán Guðlaugsson var formaður á bátnum alls 23 vetrarvertíðir.

V/b Hansína, VE 200





V/b Hansína, VE 200, 12 smálestir að stærð. Báturinn var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1917. Bátasmíðameistarinn var Ástgeir Guðmundsson í Litlabæ. Eigandi var Magnús bóndi Guðmundsson á Vesturhúsum o. fl. Hann var formaður á bátnum.

V/b Emma, VE 219



V/b Emma, VE 219, 16 smálestir að stærð. Báturinn var smíðaður á Ísafirði árið 1919. Fyrsti eigandi var Jóhann Reyndal. Þá var formaður á bátnum Guðmundur Kristjánsson. Síðar eignaðist Eiríkur Ásbjörnsson o. fl. þennan bát, og var Eiríkur sjálfur formaður á honum um árabil. Þá var Björn Bjarnason í Bólstaðarhlíð (nr. 39) við Heimagötu vélstjóri á bátnum og meðeigandi. Síðast var formaður á báti þessum Eyjólfur Gíslason frá Bessastöðum í Eyjum.




V/b Kap, VE 272
V/b Kópur, VE 212
V/b Friðþjófur, VE 98
V/b Auður, VE 3
V/b Gullveig, VE 331
V/b Freyja (Gamla Freyja), VE 260
V/b Lagarfoss, VE 292
V/b Veiga, VE 291
V/b Baldur, VE 24