Búastaðir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2005 kl. 09:02 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2005 kl. 09:02 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Búastaðir voru tvær jarðir, Eystri-Búastaðir og Vestur-Búastaðir. Upprunalega nafngiftin var Bófastaðir og er dregið af viðurnefninu buvi, sem þýddi digur, klumpalegur maður. Eftir 1600 er bærinn alltaf kallaður Búastaðir.

Búastaðir höfðu í Elliðaey 30 sauða beit og allar nytjar af fugli sem voru í eynni. Fólkið á bænum stundaði fýlatöku úr Stórhöfða.

Örnefni

Í túni Eystri-Búastaða

Dagteigur
Sléttur túnblettur nyrst og vestast í túninu, milli túna Háagarðs og Presthúsa. Á Dagteigi var grasmikið og var það álit manna að þar hefði verið akurlendi.
Lambhóll
Einnig kallað Lambhúshóll. Hóll syðst í túninu. Þar var áður lambhús.


Í túni Vestri-Búastaða

Kvíslarhóll
Stóð fyrir sunnan og vestan bæinn. Þar var áður fyrr þurrkðaar skinnbrækur á þar til gerðum kvíslum.
Ólafshúsarimi
Hólrani vestur úr Kvíslarhóli í átt til Ólafshúsa.
Hvammur
Lítil laut norður og vestur af Kvíslarhóli.